Eggert: Þeir voru arfaslakir síðast Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Edinborg skrifar 11. október 2010 10:00 Eggert Gunnþór Jónsson. Mynd/Anton „
Mér fannst þeir vera arfaslakir í síðasta leik og ég trúi ekki öðru en að þeir eigi meira inni," sagði Eggert Gunnþór Jónsson um skoska U-21 landsliðið. Ísland mætir Skotlandi í Edinborg í kvöld í síðari viðureign liðanna í rimmu þeirra um hvort kemst í úrslitakeppni EM. Ísland vann leikinn, 2-1, en hefði ef til vill átt að vinna stærri sigur. Eggert þekkir vel til í Skotlandi, þá ekki síst Edinborg, þar sem hann spilar með Hearts. Leikurinn í dag fer fram á Easter Road, heimavelli Hibernian - erkifjenda Hearts. „Mér líst vel á þetta. Við spiluðum vel síðast og erum með forystu. Það verður þó erfitt að mæta þeim hér úti enda verður mikið af fólki á vellinum og góð stemning. Ég vona að þeir mæti okkur aðeins framar á vellinum en þeir gerðu á fimmtudaginn. Þeir lágu þá aftarlega og leyfðu okkur að vera með boltann. Ég held að þeir muni pressa meira á okkur enda þurfa þeir að sækja. En það mun einnig gera það að verkum að þeir opna svæði í sinni vörn sem við getum nýtt okkur." „En þeir hljóta að eiga meira inni. Þeir voru ekki að sýna neitt sérstakt síðast og yfirspiluðum við þá nánast allan leikinn. Þeir komust í nokkrar skyndisóknir en meira var það ekki. Þeir hljóta að taka sig saman í andlitinu og koma með eitthvað betra." Hann segir að íslenska liðið sé með sterkari leikmenn en að það eitt og sér dugi ekki til í kvöld. „Þeir munu berjast fyrir sínu og við þurfum að hafa mikið fyrir því ætlum við okkur að komast áfram."
Íslenski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira