Óskar Bjarni: Mér fannst við bara tapa stigi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2010 15:32 Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals. Mynd/Stefán
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals var ekki sáttur eftir 25-25 jafntefli við HK í kvöld. Valsmenn voru með 25-23 forustu þegar fjórar mínútur voru eftir en misstu leikinn niður í jafntefli. „Mér fannst við bara tapa stigi hérna. Dómararnir gera alltof stór dýr mistök þegar þeir reka Orra útaf fyrir eitthvað sem ég gat ekki séð að væri eitthvað. Við erum að fá á okkur víti og tvær mínútur og fáum síðan sóknarbrot á línumanninn okkar þegar við erum búnir að vera kvarta yfir línumanninum þeirra allan leikinn," sagði Óskar Bjarni. „Ég er ekki vanur að setja út á dómara og þeir dæma þetta yfir höfuð vel en þeir eru bara að gera of dýr mistök," sagði Óskar Bjarni. Valsliðið er búið að endurheimta marga leikmenn úr meiðslum og Óskar Bjarni fagnar því. „Við erum að koma með menn aftur inn á bekkinn en þá vantar bara spilform og spilareynslu. Við eigum eftir að koma Siffa (Sigfús Páll Sigfússon) meira inni í þetta og Fúsi (Sigfús Sigurðsson) er að fá að spila hérna í þessum leik. Við eigum eftir að rúlla betur á mannskapnum og þegar við förum að rúlla honum meira þá erum við ógnvænlegir," sagði Óskar Bjarni. „Mér sýnist vera að fá alla inn á réttum tíma en í fyrra misstum við alla í lokin. Ég vona að þetta snúist við. Baldvin og Sigurður eru að verða flottir og Fúsi er að koma og er að standa sig vel. Nú er bara að hirða tvo punkta á móti Haukum," sagði Óskar Bjarni.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira