Álverð fór yfir 2.400 dollara í morgun 13. apríl 2010 09:06 Heimsmarkaðsverð á áli hefur stöðugt hækkað síðan í byrjun febrúar.
Heimsmarkaðsverð á áli fór í 2.415 dollara á tonnið í morgun miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. Hefur verðið ekki verið hærra síðan sumarið 2008. Verð á áli hefur hækkað stöðugt síðan í byrjun febrúar er það féll undir 2.000 dollara á tonnið. Þessar hækkanir eru í samræmi við hækkanir á annarri hrávöru eins og t.d. olíu og kopar en verð á þessum vörum hefur þokast upp í samræmi við aukinn efnahagsbata í heiminum. Hópur 24 sérfræðinga sem Bloomberg leitaði álits hjá skömmu fyrir áramótin síðustu taldi að álverðið á þessu ári myndi verða 1.885 dollarar á tonnið á markaðinum í London (LME) að meðaltali. Þetta er nokkru lægra en sami hópur spáði s.l. haust þegar hann taldi að verðið yrði í kringum 1.915 dollarar. Álverðið stóð í rúmum 2.350 dollurum strax eftir áramótin en féll síðan niður undir 2.000 dollara í byrjun febrúar. Síðan hefur það stöðuft sótt í sig veðrið.
Mest lesið Vilja „ósýnilegar“ stöðumælasektir burt Neytendur Falsaði fleiri bréf Viðskipti innlent Hætta við yfirtökuna Viðskipti innlent Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Viðskipti innlent Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Þegar gott slúður í vinnunni gerir gagn Atvinnulíf Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Viðskipti innlent
Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Viðskipti innlent