Breytingar hjá Microsoft koma fyrirtækinu hjá sektum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. september 2025 10:07 Microsoft virðist hafa komist sér undan umtalsverðum sektum. Getty Bandaríska tæknifyrirtækið Microsoft hyggst aðskilja samskiptaforritið Teams frá Office-hugbúnaðinum og selja þau hvort í sínu lagi. Með þessu leitast fyrirtækið við að komast hjá háum sektum sem Evrópusambandið hafði í hótunum á grundvelli samkeppnisreglna.
Málið á rætur að rekja til kvörtunar frá Slack, sem nú er í eigu Salesforce. Fyrirtækið taldi Microsoft misnota markaðsstöðu sína með því að binda Teams við Office-pakkann og bjóða notendum ekki annan valkost. Þýska fyrirtækið Alfaview sendi einnig inn sambærilega kvörtun. Eftir rannsókn komst framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að þeirri niðurstöðu að Microsoft hefði veitt Teams ósanngjarnt forskot með þessari samkeyrslu. Með því hefði samkeppni á markaði fyrir skýjabundin samskipta- og samvinnuforrit verið skert, þar sem Teams var boðið með vinsælum forritum á borð við Word, Excel, PowerPoint og Outlook. Sektir hefðu getað numið himinháum upphæðum en samkvæmt Reuters hefur Microsoft nú samþykkt tilslakanir sem fela meðal annars í sér að Office verði boðið án Teams á lægra verði. Þannig er talið að fyrirtækið komist hjá frekari refsiaðgerðum af hálfu Evrópusambandsins.
Microsoft Samkeppnismál Bandaríkin Mest lesið „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira