Dirk Nowitzki ekki ákveðinn í að vera áfram hjá Dallas Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. maí 2010 09:00 Dirk Nowitzki. Mynd/AP
Dirk Nowitzki er í sárum eftir enn ein vonbrigðin með Dallas Mavericks í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Dallas datt út úr fyrstu umferð í þriðja sinn á síðustu fjórum árum og hefur aldrei verið nálægt því að komast aftur í úrslitaeinvígið síðan að liðið tapaði 2-2 fyrir Miami Heat árið 2006. „Ég ætla að halda öllu opnu eins og staðan er núna. Ég ætla að sjá hvað er í gangi og taka smá tíma til að komast yfir þessi vonbrigði," sagði Dirk Nowitzki sem getur sagt samningi sínum við Dallas lausum í sumar. „Ég verð í sárum í einhverjar vikur en svo fer ég að hugsa um framtíðina," sagði Dirk sem fær 21,5 milljónir dollara fyrir næsta tímabil (2,7 milljarða íslenskra króna) ákveði hann að spila áfram með Dallas. Dallas hefur unnið 50 leiki eða meira síðustu tíu tímabil en hefur aldrei náð því að vinna titilinn. Nowitzki verður 32 ára gamall í júní og var að klára sitt tólfta tímabil. Hann skoraði 25 stig að meðaltali á þessu tímabili en hefur skorað 22,9 stig að meðaltali áferlinum. „Ég er enn að spila minn besta bolta. Ég tel að ég eigi nokkur góð ár eftir ennþá," sagði Nowitzki sem hefur aldrei hitt betur úr þriggja stiga skotum (42,1 prósent) eða vítum (91,5 prósent) en hann gerði á þessu tímabili.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira