Viðskipti innlent

Tillaga um óbreytta stjórn og stjórnarlaun hjá Össuri

Meðal tillagna á komandi aðalfundi Össurar hf. Í mars er að stjórn félagsins verði óbreytt og að laun stjórnarmanna verði einnig óbreytt frá síðasta ári.

Í stjórninni sitja nú Niels Jacobsen, Þórður Magnússon, Arne Boye Nielsen, Kristján Tómas Ragnarsson og Svafa Grönfeldt. Jacobsen er stjórnarformaður.

Óbreytt laun stjórnarinnar þýða að stjórnarformaður fær 75.000 dollara eða rúmlega 8,7 milljónir kr. Varaformaður fær 45.000 dollara og meðstjórnendur 30.000 dollara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×