Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Samúel Karl Ólason skrifar 29. janúar 2026 19:01 Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir mikilvægt að bæta stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Vísir/Einar Landsbankinn hagnaðist um 38 milljarða króna, eftir skatta, á síðasta ári. Þar varð hálfs milljarðs aukning á milli ára. Til stendur að greiða helming hagnaðarins, eða nítján milljarða, í arð til eigenda. Bankaráð Landsbankans er einnig með til skoðunar að leggja til sérstaka arðgreiðslu fyrir aðalfund.
Í uppgjöri bankans fyrir árið segir að um nítján milljarðar hafi verið greiddir í skatta á síðasta ári. Útlán jukust um 76,9 milljarða króna, eða um 4,3 prósent og innlán um 20,9 milljarða eða 1,7 prósent. Hreinar þjónustutekjur hækkuðu um 10,1 prósent. Þá hækkaði kostnaðarhlutfall bankans lítillega milli ára og var 34,3 prósent. Áhugasamir geta fundið uppgjörið og frekari upplýsingar hér á vef Landsbankans. Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri, segir uppgjörið vera gott og það endurspegli stöðugan rekstur í krefjandi rekstrarumhverfi. „Arðsemi eiginfjár bankans á síðasta ári var 11,6% sem var í samræmi við áætlanir og kostnaðarhlutfallið var 34,3% sem er með því lægsta sem þekkist meðal sambærilegra banka á heimsvísu.“ Hún segir að þrátt fyrir efnahagsumhverfi sem einkennist af þrálátri verðbólgu og háu vaxtastigi, sjáist að fjárhagsleg staða heimila og fyrirtækja sem eru í viðskiptum við Landsbankann sé almennt sterk. Lilja fjallar einnig um úrskurði Hæstaréttar í vaxtamálum undir lok síðasta árs. Landsbankinn hafi verið fyrstur til að kynna nýtt lánaframboð af óverðtryggðum lánum með fasta vexti. „Við sáum okkur ekki annað fært en að takmarka framboð af verðtryggðum íbúðalánum við fyrstu kaupendur og bjóða fasta vexti með styttri lánstíma en áður. Þetta hefur gert það að verkum að í þeim tilvikum þegar það skiptir lántaka mestu máli að greiðslubyrði sem sé allra lægst erum við ekki eins samkeppnishæf og áður.“ Þá segir Lilja að mikilvægt sé að ná betra jafnvægi í efnahagslífinu, að verðbólga lækki og þannig sé hægt að lækka vaxtastig. „Vonandi skapast sem fyrst aðstæður til þess sem fyrst. Það yrði kærkomið fyrir viðskiptavini bankans sem eru með lán og myndi gefa fyrirtækjum aukið svigrúm til fjárfestinga og stuðla bæði að auknum hagvexti og fleiri tækifærum til framtíðar.“
Landsbankinn Fjármálafyrirtæki Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Alvotech stóðst úttekt FDA Viðskipti innlent Gengi Alvotech tekur kipp Viðskipti innlent Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Viðskipti innlent Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Viðskipti innlent Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Sjá meira