Icelandair sleppur við 130 milljón stjórnvaldssekt 28. febrúar 2011 08:07
Héraðsdómur hefur staðfest þá niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála að Icelandair hafi verið í markaðsráðandi stöðu og misnotað hana með kynningu á svokölluðum Netsmellum á árinu 2004. Hinsvegar hefur dómurinn fellt úr gildi stjórnvaldssekt upp á 130 milljónir kr. sem Icelandair hafði verið gert að greiða. Í umfjöllun um málið á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins segir að héraðsdómur taldi brotin ekki eins alvarleg og lagt var til grundvallar í úrskurði áfrýjunarnefndar og felldi úr gildi sektarákvörðun áfrýjunarnefndar. Með framangreindum dómi kemst Héraðsdómur að sömu efnisniðurstöðu og í fyrri dómi frá 2. febrúar 2010, en Hæstiréttur ómerkti þann dóm þar sem of langur tími leið á milli aðalmeðferðar í málinu og dómsuppsögu. Fór því málflutningur fram að nýju. Samkeppniseftirlitið mun áfrýja dóminum til Hæstaréttar eins og hinum fyrri og m.a. láta reyna á réttmæti þess að fella niður sektir á Icelandair. Forsaga málsins er að í júní 2007 staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála ákvörðun Samkeppniseftirlitsins þess efnis að með kynningu og sölu á flugfargjöldum, svokölluðum Netsmellum að upphæð 16.900 kr., sem stóðu viðskiptavinum Icelandair ehf., til boða á árinu 2004 á flugleiðinni milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar annars vegar og á flugleiðinni milli Keflavíkur og London hins vegar, hafi félagið misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið gegn samkeppnislögum. Var Icelandair gert að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 130 milljónir króna í ríkissjóð. Icelandair skaut úrskurði áfrýjunarnefndar til dómstóla.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira