Viðskipti innlent

Fiskiskipum fjölgaði um 43 í fyrra

Alls voru 1.625 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun um síðustu áramót og hafði þeim fjölgað um 43 frá árinu áður.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar en þar er komið út hefti í efnisflokknum Sjávarútvegur þar sem birtar eru upplýsingar um fiskiskipastólinn í árslok 2010.

Fjöldi vélskipa var alls 761 og samanlögð stærð þeirra 83.457 brúttótonn. Vélskipum fækkaði um 7 skip á milli ára og flotinn minnkaði um 3.312 brúttótonn.

Togarar voru alls 57 og fækkaði um einn frá árinu á undan. Heildarstærð togaraflotans var 65.087 brúttótonn og hafði minnkað um 2.783 brúttótonn frá árinu 2009.

Opnir fiskibátar voru 807 talsins og 3.857 brúttótonn að stærð. Opnum fiskibátum fjölgaði um 51 milli ára og heildarstærð þeirra jókst um 242 brúttótonn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×