Pálmi og Hannes búnir að skila yfirlýsingum Þorbjörn Þórðarson skrifar 24. febrúar 2011 18:42
Pálmi Haraldsson og Hannes Smárason haf nú skilað yfirlýsingu til dómstóls í New York og því uppfyllt skilyrði sem voru sett þegar Glitnis-málinu var vísað frá. Reiði og gremja er í garð þeirra tveggja meðal annarra sem stefnt var í málinu vegna endurupptöku þess. Dómarinn í Glitnis-málinu í New York vísaði því frá á þeirri forsendu að þeir hinir stefndu gæfu yfirlýsingar um að dómur í málinu á Íslandi væri aðfararhæfur í New York, þ.e að aðilar málsins féllust á að varnarþingið væri á Íslandi en að fullnusta mætti slíkan dóm fyrir dómstólum Vestanhafs. Engir tímafrestir voru í ákvörðun dómarans en allir hinir stefndu skiluðu yfirlýsingum að undanskildum Hannesi Smárasyni og Pálma Haraldssyni. Slitastjórn Glitnis krafðist því endurupptöku málsins þar sem skilyrði frávísunar höfðu ekki verið uppfyllt að fullu, en skilyrðið var að allir myndu gefa slíka yfirlýsingu út. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar olli þetta mikilli gremju meðal þeirra sem skiluðu yfirlýsingum á réttum tíma. Litið væri svo á að allir hinir stefndu væri dregnir inn í málið á ný vegna klúður tveggja. Hannes Smárason skilaði síðan yfirlýsingu í gær þar sem hann lýsir því yfir að hann andmæli ekki að dómur á hendur honum á Íslandi verði aðfararhæfur. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu skiluðu lögmenn Pálma Haraldssonar slíkri yfirlýsingu í dag. En þýðir það að frávísunin standi þar sem skilyrði hennar eru uppfyllt? Það er ekki víst. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, vildi t.d engu svara um það í samtali við fréttastofu í dag. Hún sagði að hún hefði ekki séð yfirlýsingar þeirra Pálma og Hannesar og að slitastjórnin þyrfti að ráðfæra sig við lögmenn sína í Bandaríkjunum um næstu skref.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira