Landsbankinn tapaði í héraði og áfrýjar til Hæstaréttar 23. febrúar 2011 17:10
Landsbankinn hefur ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar dómi sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag en þar féllst dómari á rök þrotabús Mótormax ehf að lán sem fyrirtækið tók hjá Landsbankanum væri ekki í erlendri mynt, heldur í íslenskum krónum með gengistryggingu við erlenda mynt. Bankinn taldi hinsvegar að umræddur samningur hafi falið í sér skuldbindingu í erlendri mynt. „Landsbankinn telur óhjákvæmilegt að fá dóm Hæstaréttar Íslands um þetta ágreiningsefni og mun því kæra niðurstöðuna,“ segir í tilkynningu frá bankanum. Þar segir að málið sæti flýtimeðferð fyrir Hæstarétti og er endanlegrar niðurstöðu að vænta á næstu vikum. „Endanlegt uppgjör Landsbankans fyrir árið 2010 liggur ekki fyrir og því ekki hægt að meta nákvæmlega áhrif þess á bankann staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Ljóst er þó að ef öll erlend lán af þessum toga yrðu talin ólögmæt, yrðu neikvæð áhrif á eignastöðu bankans að hámarki um 16 milljarðar króna.“ Þá segir bankinn að í málinu sé fjallað um algengasta form lána Landsbankans í erlendri mynt til fyrirtækja „og þó þessi málalok hefðu umtalsverð áhrif, þá væri fjárhagsstaða bankans enn sterk, eiginfjárhlutfall hans yrði áfram hátt og vel umfram það 16% lágmark sem Fjármálaeftirlitið gerir kröfu um.“
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira