Viðskipti innlent

Íslendingar í hópi mestu kaffineytenda heimsins

Íslendingar eru í hópi mestu kaffineytenda í heiminum. Raunar deilda þeir öðru sætinu með Norðmönnum en báða þessar þjóðir nota tæp 10 kíló á kaffi á mann á hverju ári. Finnar eru í efsta sæti en þarlendis eru notuð 12 kíló af kaffi á mann árlega.

Þessar upplýsingar er að finna á vefsíðunni chartsbin.com. Norðurlandabúar eru óumdeilanlega mestu kaffidrykkju þjóðir heimsins því neysla Svía og Dana nemur rúmum 8 kílóum á mann á ári.

Mælt í heildarneyslu eru Bandaríkin mesta kaffiþjóð heimsins en þar er hellt upp á úr tæpum 1,3 milljón kílóum á ári. Næst á eftir kemur Brasilía með rúmlega milljón kíló. Minnsta kaffineyslan er í Asíu og sunnanverðri Afríku, raunar varla dropi drukkin í mörgum löndum í þeim heimsálfum.

Í heildina nemur kaffineysla heimsins 1,3 kg á hvert mannsbarn en heildarmagnið er tæplega 7,4 milljónir tonna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×