Viðskipti innlent

Launavísitalan nær óbreytt milli mánaða

Launavísitala í janúar 2011 er 383,2 stig og hækkaði um 0,02% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar.

Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,4%.

Vísitala kaupmáttar launa í janúar 2011 er 108,2 stig og hækkaði um 0,9% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,5%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×