Ólögmæt riftun vegna greiðsluaðlögunar 21. febrúar 2011 11:07
Samtök lánþega benda á, að með riftunum á bílasamningum skuldara sem eru í umsóknarferli um greiðsluaðlögun, þá eru fjármögnunarfyrirtækin að fara fram á að skuldari fremji lögbrot með því að mismuna kröfuhöfum á síðari stigum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. Þar segir að í mörgum tilfellum er um að ræða samninga þar sem ljóst er að eignarhlutur skuldara í bifreið er umtalsverður. Í slíkum tilfellum væri verið að mismuna kröfuhöfum. Jafnframt eru fjármögnunarfyrirtækin að ganga gegn almennum rétti neytenda með því að svipta þá eign sinni án þess að fullnaðaruppgjör komi á móti. Er í því tilefni bent á hæstaréttardóma sem segja kaupleigusamninga vera lánasamninga og því er lánþegi hinn rétti eigandi bifreiðar og fjármálafyrirtæki óheimilt að ráðstafa þeirri eign. Samtök lánþega krefjast þess að fjármálafyrirtækin láti þegar af þessari ólöglegu háttsemi. Er þess og krafist að fjármálafyrirtækin taki upp viðræður við lánþega um útfærslu á þeim málum er svo er háttað um og hagi samningsriftunum með eftirfarandi hætti: Telji fjármögnunarfyrirtæki nauðsynlegt að rifta lánasamning vegna umsóknar skuldara um greiðsluaðlögun þá skal slíkt gert í samráði við skuldara. Skuldara skal gefinn kostur á að mæta með bifreið í ástandsskoðun á viðurkenndu verkstæði hvar verðmæti bifreiðar er metið. Skal slíkt mat fara fram á kostnað fjármögnunarfyrirtækis, enda er krafa um riftun frá þeim komin. Eftir að mat hefur verið lagt á bifreið, skal fara fram uppgjör. Skal í þeim tilvikum þar sem andvirði bifreiðar er hærra en eftirstöðvar skuldar, endurgreiða skuldara þá fjárhæð með eingreiðslu um leið og bifreið er afhent. Sé um að ræða mismun fjármögnunarfyrirtæki í hag, þá skal fjármögnunarfyrirtæki við móttöku bifreiðar lýsa þeirri fjárhæð sem samningskröfu á hendur skuldara og verður sú krafa þá metin til jafns við aðrar kröfur í bú skuldara þegar greiðsluaðlögun kemur til afgreiðslu hjá embætti Umboðsmanns skuldara, að því er segir í tilkynngunni.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira