Fjölgað um tvo í stjórn Nýherja 21. febrúar 2011 10:37 Guðmundur Jóh. Jónsson, Hildur Dungal, Benedikt Jóhannesson, Marta Kristín Lárusdóttir, Árni Vilhjálmsson og Jafet S. Ólafsson.
Fjölgað var um tvo, úr þremur í fimm, í aðalstjórn Nýherja hf. á aðalfundi félagsins, sem haldinn var síðastliðinn föstudag. Ný í aðalstjórn eru Jafet S. Ólafsson, framkvæmdastjóri hjá Veigari fjárfestingafélagi, og Hildur Dungal, lögfræðingur. Auk þeirra sitja Benedikt Jóhannesson, Árni Vilhjálmsson og Guðmundur Jóh. Jónsson í aðalstjórn félagsins. Þá var Marta Kristín Lárusdóttir, lektor í Tölvunarfræðideild við Háskólann í Reykjavík, sjálfkjörin varamaður í stjórn Nýherja hf. Í tilkynningu segir að Benedikt Jóhannesson stjórnarformaður Nýherja hf. sagði í ræðu sinni á aðalfundi fagna því að tvær konur hefðu gefið kost á sér til starfa í stjórn, önnur sem aðalmaður og hin sem varamaður. “Það er vel við hæfi að þetta beri upp á sama dag og 100 ár eru frá fæðingu Auðar Auðuns, fyrstu konunnar sem gegndi embætti borgarstjóra og ráðherra. Þetta verður í fyrsta sinn sem konur koma að stjórn félagsins, en vonandi verður þetta einnig til þess að efla hlut kvenna í stjórnunarstöðum í félaginu. Það er eindreginn vilji stjórnar að svo verði,” sagði Benedikt.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira