Ferðamönnum fjölgaði um 12,6% milli ára í febrúar 9. mars 2011 07:45
Tæplega 23 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu í nýliðnum febrúarmánuði og er um að ræða 2.500 fleiri brottfarir en í febrúarmánuði 2010. Erlendum gestum fjölgaði því um 12,6% í febrúarmánuði á milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Ferðamálastofu. Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í febrúar frá Bretlandi eða 30,8% af heildarfjölda. Næstfjölmennastir voru Bandaríkjamenn eða 12,7% af heildafjölda, síðan komu Norðmenn (7,9%), Danir (6,4%), Þjóðverjar (5,7%), Frakkar (5,5%) og Svíar (5,2%). Ef litið er til einstakra markaðssvæða má sjá verulega fjölgun frá Bretlandi milli ára, N-Ameríku og þeim löndum Mið- og S- Evrópu sem talið er frá. Þannig fóru tæplega þúsund fleiri Bretar frá landinu í febrúar í ár en í febrúarmánuði í fyrra, um 800 fleiri N-Ameríkanar og um 600 fleiri gestir frá Mið- og S-Evrópu. Svipaður fjöldi Norðurlandabúa og gesta frá löndum innan og utan Evrópu sem eru flokkuð saman undir ,,Annað” fór úr landi í febrúarmánuði í ár og í fyrra. Frá áramótun hafa 45 þúsund erlendir ferðamenn farið frá landinu sem er um 15 prósenta aukning frá árinu áður. Ríflega þriðjungsaukning (37,2%) hefur verið í brottförum frá N-Ameríku, fjórðungsaukning frá Mið-og Suður Evrópu, 13% aukning frá Norðurlöndunum og tæp 11% frá Bretlandi. Svipaður fjöldi hefur komið frá löndum sem flokkast undir ,,Annað”. Umtalsvert fleiri Íslendingar eða 2.600 talsins fóru utan í febrúar í ár en í fyrra. Í ár fóru 19.600 Íslendingar utan en 17 þúsund árið áður. Aukningin nemur 15,3% á milli ára. Frá áramótum hafa um 42 þúsund Íslendingar farið utan, 5.400 fleiri en á sama tímabili árið 2010 þegar tæplega 37 þúsund Íslendingar fóru utan.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira