Engar breytingar hjá SpKef fyrst um sinn 7. mars 2011 10:22 Mynd: Valgarður
Öll útibú SpKef verða opin samkvæmt venju og viðskiptavinir geta leitað til eigin þjónustufulltrúa með fyrirspurnir. Reikningar og reikningsnúmer viðskiptavina verða óbreytt fyrst um sinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýja Landsbankanum en samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins tók Landsbankinn í morgun 7. mars kl. 08.30, við rekstri SpKef. Allir starfsmenn sparisjóðsins eru nú orðnir starfsmenn Landsbankans og allur rekstur á ábyrgð hins sameinaða félags. Öll starfsemi SpKef er með eðlilegu sniði en nú undir merkjum Landsbankans. Fundur með starfsfólki sem áður starfaði hjá SpKef var haldinn í morgun í Stapa í Reykjanesbæ.Þar kom fram eftirfarandi: Landsbankinn mun leitast við að tryggja sem flestum starfsmönnum sem áður störfuðu undir merkjum SpKef starf við hæfi. Engar afgerandi breytingar verða fyrst um sinn gerðar á starfsemi útibúa í byggðakjörnum þar sem SpKef var eina fjármálafyrirtækið. Fyrir liggur að útibú á þeim stöðum þar sem bæði Landsbankinn og SpKef hafa haft starfsemi , verða sameinuð. Þetta á við um Reykjanesbæ, Ólafsvík, Grindavík og Ísafjörð. Leitast verður við að bjóða starfsmönnum á þessum stöðum ný atvinnutækifæri innan Landsbankans. Fyrirsjáanlegt er að hagræðing verði á mörgum sviðum sem njóta stærðarhagkvæmni. Einhverjar breytingar á högum fólks eru óhjákvæmilegar. Ljóst er að ekki geta allir haldið sömu störfum á sama stað. Höfuðstöðvar SpKef í Reykjanesbæ verða strax hluti af höfuðstöðvum Landsbankans. Möguleikar verða kannaðir á starfsstöð á Suðurnesjum tengdri verkefnum höfuðstöðva Landsbankans. Starfsmönnum hins sameinaða banka sem komnir eru nærri eftirlaunaaldri verður boðinn starfslokasamningur óski þeir þess. Einar Hannesson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri tekur sæti í stýrihópi um samþættingu starfsemi SpKef og Landsbankans. Hópur sérfræðinga frá Landsbankanum starfar við hlið sérfræðinga í höfuðstöðvum SpKef til að liðka fyrir samruna. Forsvarsmenn Landsbankans gera sér fulla grein fyrir því mikilvæga hlutverki sem SpKef hefur í samfélaginu á Suðurnesjum, Vestfjörðum, Snæfellsnesi og á Hvammstanga, m.a. í menningar-, æskulýðs-, íþrótta og góðgerðarstarfi. Allir samningar sem SpKef hefur gert á þessum sviðum verða í heiðri hafðir út þetta ár en Landsbankinn áskilur sér rétt til endurskoða þá í góðu samstarfi við hlutaðeigandi að þeim tíma loknum. Landsbankinn hefur þegar lýst þeim vilja sínum að starfa náið með hagsmunaaðilum á starfssvæði Spkef. Fundir með forsvarsmönnum sveitarfélaga, helstu samtaka atvinnurekenda og verkalýðsfélaga í þessari viku, eru fyrsta skrefið á þeirri leið.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira