Skuldatryggingaálag Íslands helst stöðugt 4. mars 2011 11:40
Skuldatryggingaálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands hefur verið nokkuð stöðugt upp á síðkastið. Í lok dags í gær stóð álagið í 246 punktum (2,46%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni og hafði lækkað lítillega frá deginum áður þegar það stóð í 254 punktum. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á sama tíma í fyrra stóð áhættuálagið í 456 punktum en sem kunnugt er hefur það lækkað verulega síðasta árið. Ekki er hægt að segja sömu sögu um áhættuálagið á öðrum ríkjum Vestur Evrópu sem hefur í flestum tilfellum hækkað, sér í lagi þeirra evruríkja sem kastljósið hefur beinst að síðasta árið vegna bágrar stöðu ríkisfjármála innanlands. Á sama tímabili og áhættuálagið á Ísland hefur lækkað um rúma 200 punkta hefur meðaláhættuálagið á ríki Vestur Evrópu þannig hækkað um 100 punkta en það stóð í lok dags í gær í 194 punktum. Þrátt fyrir ofangreinda þróun er áhættuálagið á Ísland með því hæsta sem gerist á meðal ríkja Vestur Evrópu sem seldar eru skuldatryggingar fyrir. Áhættuálagið var hærra á aðeins þremur öðrum ríkjum í lok dags í gær, þ.e. Grikklandi (964 punktar), Írlandi (570 punktar) og svo Portúgal (470 punktar). Skuldatryggingaálagið á Spán (241 punktar) var svo í fimmta sæti á þessum lista og í sjötta sæti var svo álagið á Ítalíu (171 punktar). Lægst er skuldatryggingaálagið á hin Norðurlöndin, auk Sviss, og eru Norðmenn þar, líkt og oftast er raunin, með yfirburðastöðu. Álagið á norska ríkið í lok dags í gær nam aðeins 19 punktum, að því er segir í Morgunkorninu. Hér má bæta við að mikill munur er á mælingu álagsins samkvæmt Bloomberg (CMA) og Markit iTraxx vísitölunnar sem einnig mælir skuldatryggingaálög. Samkvæmt síðustu mælingu Markit iTraxx var íslenska álagið 281 punktur.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira