Undanþága veitt vegna sértækrar skuldaaðlögunnar 18. mars 2011 09:41
Samkeppniseftirlitið hefur veitt Samtökum fjármálafyrirtækja f.h. aðildarfélaga sinna, Íbúðalánasjóði, Landssamtökum lífeyrissjóða f.h. aðildarsjóða sinna, Sambandi íslenskra sparisjóða, slitastjórn SPRON og slitastjórn Frjálsa fjárfestingabankans heimild til þess að gera og framkvæma samkomulag um verklagsreglur um sértæka skuldaaðlögun einstaklinga. Þetta kemur fram á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins en sótt var um undanþágu frá samkeppnisreglum vegna ákvörðunar stjórnvalda í samvinnu við fyrrgreind fyrirtæki um sértæka skuldaaðlögun einstaklinga. Sett eru margvísleg skilyrði fyrir undanþágunni. Meðal annars að í samkomulaginu felast lágmarksviðmiðunarreglur og er fjármálafyrirtæki því heimilt að veita viðskiptavinum sínum betri kjör en samkomulagið gerir ráð fyrir. Fyrirtækjum sem aðild eiga að samkomulagi þessu er einungis heimilt að eiga með sér samstarf eða funda á grundvelli samkomulagsins en í því felst ekki heimild til nánara samráðs um verð og viðskiptakjör en kveðið er á um í samkomulaginu. Halda skal skýrar fundargerðir um fundi sem haldnir eru vegna samkomulagsins. Þá skal haldið til haga yfirliti yfir öll gögn sem lögð eru fram á fundum eða verða til vegna framkvæmdar á samkomulaginu. Fjármálafyrirtæki sem aðild eiga að samkomulaginu skulu tilnefna fastan fulltrúa sem situr fundi fyrir þeirra hönd á vettvangi kröfuhafa. Fyrirtækjunum sem aðild eiga að samkomulaginu er einungis heimilt að eiga með sér samstarf eða fundi að viðstöddum fulltrúa umboðsmanns skuldara. Skal fulltrúi umboðsmanns hafa aðgang að öllum gögnum sem verða til vegna samstarfsins. Hvert fjármálafyrirtæki fyrir sig skal upplýsa Samkeppniseftirlitið innan fjögurra vikna frá dagsetningu þessarar ákvörðunar um þær ráðstafanir sem gripið hefur verið til. Undanþága þessi veitir ekki öðrum aðilum samkomulagsins en fjármálafyrirtækjum sem stunda útlánastarfsemi eða stunduðu slíka starfsemi fyrir gjaldeyrishrunið 2008 rétt til samstarfs sem fer gegn Komi til þess að gera þurfi frekari breytingar á reglunum skal það borið fyrirfram undir Samkeppniseftirlitið.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira