Spáir því að verðbólgan aukist í 2,3% í mars 17. mars 2011 11:21
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 1,0% í mars frá fyrri mánuði. Ef spáin gengur eftir hækkar tólf mánaða taktur verðbólgunnar í mánuðinum og mun verðbólga þá mælast 2,3%, en verðbólga mælist nú 1,9%. Hagstofan birtir vísitölumælingu sína kl. 9 þann 29. mars næstkomandi. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að þrír þættir leggjast á eitt að skila jafn mikilli mánaðarhækkun vísitölunnar og greiningin gerir ráð fyrir nú í mars. Eru það áhrif útsöluloka, veiking krónu frá áramótum og mikil hækkun eldsneytis- og hrávöruverðs undanfarið. „Við gerum þannig ráð fyrir að verðhækkun á fötum, skóm, húsbúnaði og öðrum slíkum varningi sem verið hefur á útsölum leiði til tæplega 0,5% hækkunar VNV í mars. Verður þar raunar einnig að hafa í huga að margt af þeim nýju vörum sem leysa útsöluvarninginn af hólmi í hillum verslana var væntanlega keypt inn á lægra gengi krónu, auk þess sem kostnaðarverð erlendis hefur í ýmsum tilfellum hækkað vegna hærra hrávöru- og orkuverðs,“ segir í Morgunkorninu. „Þá hækkaði eldsneytisverð verulega á milli febrúar- og marsmælinga Hagstofunnar og teljum við að það hafi áhrif til 0,3% hækkunar VNV nú. Við gerum hins vegar ráð fyrir að þjónustuliðir í vísitölunni hækki lítið, og þá lítur út fyrir að húsnæðisliðurinn verði lítt breyttur milli mánaða.“ Útlit er fyrir að gengislækkun krónu í upphafi árs og hátt hrávöruverð undanfarið muni einnig setja mark sitt að einhverju leyti á næstu mælingar VNV. Þó virðist hafa orðið lát í bili á fyrrnefndri þróun, og ættu þessi áhrif því að fjara nokkuð hratt út ef ekki verður um frekari veikingu krónu eða hrávöruverðhækkun að ræða næsta kastið. „Við áætlum að VNV muni hækka um 1,8% milli febrúar og maí, en að í kjölfarið hægist á mánaðartaktinum og hann fari í svipað far og raunin var á seinni hluta síðasta árs. Verðbólga ætti því eftir sem áður að verða hófleg, og ekki úr takti við 2,5% markmið Seðlabankans. Spáum við því að verðbólga reynist að meðaltali 2,8% á yfirstandandi ári, og að í árslok mælist hún 3,0%,“ segir í Morgunkorninu. „Er þetta nokkru meiri verðbólga en við höfum áður spáð og helgast það af gengisþróun krónunnar undanfarið og verðhækkun hrávara og eldsneytis á alþjóðamörkuðum.“
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira