MS skilaði tæplega 300 miljóna hagnaði í fyrra 15. mars 2011 08:18
Rekstur Mjólkursamsölunnar (MS) gekk vel í fyrra og nam hagnaður af starfseminni 293 milljónum kr. eftir skatta sem er mikill viðsnúningur frá árinu 2009. MS er að langstærstum hluta í eigu kúabænda (93%) á móti 7% hlut Kaupfélags Skagfirðinga. Fjallað er um málið á vefsíðu Landssambands kúabænda. Þar segir að heildarvelta fyrirtækisins í fyrra var 18,6 milljarðar króna sem er 4% aukning frá árinu 2009 og nærri 47% aukning frá árinu 2007. Að sögn Einars Sigurðssonar, forstjóra Mjólkursamsölunnar, eru meginástæður rekstrarbatans þær að félaginu tókst að lækka söfnunar-, vinnslu og afsetningarkostnað um 200 milljónir króna frá árinu 2009 þrátt fyrir margvíslegar kostnaðarhækkanir. Einnig skiptir máli verðhækkun á seinni helmingi árs 2009. Þá er að skila sér í rekstrarniðurstöður Mjólkursamsölunnar hagræðingaraðgerðir frá fyrri árum. Einar bendir á að þótt náðst hafi mikilvægur árangur í rekstrinum sé hagnaðurinn þó aðeins um 1,6% af veltu félagsins. "Frá því að MS og MBF gengu í eina sæng árið 2005 hefur náðst fram 1,8 milljarða króna hagræðing í mjólkuriðnaðinum á verðlagi ársins 2011. Hagræðingin hefur verið nauðsynleg til að hægt væri að standa við verðlagsákvarðanir um hráefni vegna þess að ekki hefur verið veitt svigrúm til að veita þeim kostnaðarauka út á markaðinn. Hluta af þessari hagræðingu er skilað til bænda í hráefnisverðinu og hluta í lækkun söfnunarkostnaðar mjólkur. Við gerum t.d. ráð fyrir að með þeirri vinnu sem nú er í gangi muni söfnunarkostnaður bænda fyrir mjólk lækka um u.þ.b. 20%" sagði Einar í viðtali við naut.is. Einar bendir á að félagið hafi með hagræðingunni náð að skila sínu bæði til bænda og til neytenda. "Heildsöluverð á mjólkurafurðum hefur hækkað minna en neysluvísitalan frá því að þessar aðgerðir hófust fyrir fimm árum. Neytendur hafa því notið raunlækkunar á verði mjólkurvara".
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira