Heildarútgjöld hins opinbera lækkuðu um 2% milli ára 14. mars 2011 09:04
Heildarútgjöld hins opinbera 2010 námu 748 milljörðum króna og lækkuðu um 2% milli ára, eða úr 51,0% af landsframleiðslu 2009 í 48,6% 2010. Þar af runnu 405 milljarðar króna til þriggja stærstu útgjaldaflokka hins opinbera – heilbrigðismála, fræðslumála, almannatrygginga og velferðarmála – eða 26,3% af landsframleiðslu. Þetta kemur fram í Hagtíðindum í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera árið 2010 og hægt er að finna á vefsíðu Hagstofunnar. Heildarútgjöld til heilbrigðismála námu 143,5 milljörðum króna 2010, eða 9,3% af landsframleiðslu. Þar af var hlutur hins opinbera 115,6 milljarðar króna en hlutur heimila um 28 milljarðar eða 19,5%. Á mann námu heilbrigðisútgjöld hins opinbera 364 þúsund krónum og lækkuðu um 22 þúsund krónur frá 2009. 15,5% heildarútgjalda hins opinbera runnu til heilbrigðismála. Til fræðslumála var ráðstafað 132 milljörðum króna 2010, eða 8,6% af landsframleiðslu. Þar af var fjármögnun hins opinbera rúmlega 120 milljarðar króna og hlutur heimilanna 11,5 milljarðar króna, eða 8,7%. Um 16,1% heildarútgjalda hins opinbera rann til fræðslumála. Til almannatrygginga og velferðarmála ráðstafaði hið opinbera 169 milljörðum króna 2010, eða 11% af landsframleiðslu (22,6% heildarútgjalda). Hrein peningaleg eign hins opinbera, þ.e. peningaleg eign umfram skuldir, var neikvæð um 663 milljarða króna í árslok 2010, eða sem svarar 43% af landsframleiðslu. Hún versnaði um 66 milljarða króna milli ára eða 3% af landsframleiðslu. Peningalegar eignir hins opinbera námu 1.188 milljörðum króna í árslok 2010 (77,1% af landsframleiðslu) og heildarskuldir námu 1.851 milljarði króna (120,2% af landsframleiðslu). Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um ríflega 97 milljarða króna árið 2010, eða 6,3% af landsframleiðslu. Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 149 milljarða króna árið 2009 eða 10% af landsframleiðslu. Tekjur hins opinbera námu 651 milljarði króna árið 2010 og hækkuðu um 5,9% milli ára. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 42,3% samanborið við 41,1% árið 2009, 44,1% árið 2008 og 47,9% árið 2007. Þær hafa því hækkað um ríflega eitt prósentustig af landsframleiðslu frá fyrra ári eftir umtalsverða lækkun frá árinu 2007.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira