Bensínið gæti hækkað um tíu krónur til viðbótar 13. mars 2011 18:58
Búast má við frekari eldsneytishækkunum hér á landi ef innkaupaverð á olíu helst í núverandi hæðum. Bensín gæti hækkað um allt tíu krónur til viðbótar. Innkaupaverð á Brent hráolíu stendur nú í um 114 dollurum tunnan en verðið rauk úr 100 dollurum í 116 einkum vegna mikils óróa í Mið-Austurlöndum. Á föstudaginn lækkaði olíuverð hins vegar aðeins vegna jarðskjálftans í Japan en Japan er þriðji stærsti innflytjandi olíu í heiminum. Olíuverð nálgast nú óðum hæsta gildi frá upphafi en sumarið 2008 fór verðið yfir 140 dollara tunnan. Ljóst er að haldist olíuverð í þessum hæðum mun það ógna efnahagsbata heimsins þar sem stærri hluti vergrar landsframleiðslu fer nú í olíukaup segir í markaðspunktum sem Greiningardeild Arion Banka sendir frá sér. Þá mun hærra olíuverð valda tekjutilfærslu milli aðila. Neytendur tapa á meðan ríkisstjórnir í gegnum skatta og eignahluti og hluthafar olíufyrirtækja græða. Viðskiptablaðið Financial Times heldur því fram að verðhækkanir á olíu haldi hagkerfum heims í gíslingu og séu ekki ábætandi þar sem flestar ríkisstjórnir hafi nú þegar skorið umtalsvert niður í ríkisútgjöldum og megi ekki við lægri einkaneyslu en spár gera ráð fyrir. Verðhækkanir valda auk þess verðbólgu sem gæti leitt til hærra vaxtastigs.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira