Hlutbréf Össurar hf. út úr og svo aftur inn í Kauphöllina 11. mars 2011 09:52
Kauphöllin hefur samþykkt beiðni Össurar hf. um töku hlutabréfa félagsins úr viðskiptum. Hlutabréfin verða tekin úr viðskiptum í Kauphöllinni við lok viðskipta þann 25. mars, 2011. Hlutabréfin verða svo aftur tekin til viðskipta í Kauphöllinni að eigin frumkvæði hennar þann 28. mars eins og heimilt er í lögum. Kauphöllin hefur birt tvær tilkynningar um málið. Í þeirri fyrri er greint frá því að viðskiptum með bréf í Össuri verði hætt að beiðni félagsins sem sótt hefur um afskráningu þeirra. „Aðalfundur Össurar samþykkti þann 4. mars sl. ákvörðun stjórnar um að óska eftir töku hlutabréfa félagsins úr viðskiptum í Kauphöllinni. Enn fremur hefur Össur tilkynnt Kauphöllinni að fari svo að Seðlabankinn muni ekki, í tilefni hækkunar hlutafjár í félaginu, veita viðkomandi hluthöfum undanþágu frá gjaldeyrisreglum til að afla sér erlends gjaldeyris til greiðslu fyrir hið nýja hlutafé, muni félagið taka við greiðslum í íslenskum krónum," segir í þessari tilkynningu. Í seinni tilkynningunni segir að ákvörðun um að taka hlutabréfin aftur til viðskipta 28. mars byggi á 23. gr. laga um kauphallir sem heimilar kauphöll að taka verðbréf til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði án samþykkis útgefanda hafi verðbréfin verið tekin til viðskipta á öðrum skipulegum verðbréfamarkaði á Evrópska efnahagssvæðinu. „Ákvörðun Kauphallarinnar um að taka hlutabréf Össurar til viðskipta að eigin frumkvæði er tekin með hliðsjón af þeim gjaldeyrishöftum sem nú eru við lýði á Íslandi. Gjaldeyrishöftin þýða að Kauphöllin er eini skipulegi verðbréfamarkaðurinn þar sem íslenskir fjárfestar, þ.m.t. íslenskir hluthafar Össurar, geta keypt og selt hlutabréf í félaginu án takmarkana," segir í tilkynningunni. „Viðskipti með hlutabréf Össurar munu lúta sömu reglum og eftirliti og önnur viðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni. Samkvæmt 23. gr. laga um kauphallir er Össuri ekki skylt að sinna upplýsingaskyldu gagnvart Kauphöllinni enda er taka til viðskipta ekki gerð með samþykki félagsins. Félagið sinnir hins vegar upplýsingaskyldu gagnvart kauphöllinni í Kaupmannahöfn."
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira