Talsverð viðbrögð á skuldabréfamarkaði við haftaáætlun 28. mars 2011 12:24
Talsverð viðbrögð hafa verið á skuldabréfamarkaði nú í morgun við áætluninni um afnám hafta sem birt var eftir lokun markaða síðastliðinn föstudag. Hefur verið töluverður kaupþrýstingur verið nú í morgunsárið á lengri óverðtryggð bréf og veltan verið mikil. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þegar þetta er ritað (kl. 11:30) nemur heildarveltan með markflokka skuldabréfa ríflega 16 milljörðum kr. frá opnun markaða nú í morgun. Nemur kröfulækkun þriggja lengstu óverðtryggðu flokkanna nú um 22-24 punktum frá opnun markaða og liggur krafa þeirra nú á bilinu 6,23%-6,98%. Auk þess hefur krafa RIKB16 lækkað töluvert þar sem af er morgni, eða um 18 punkta, og stendur hún nú í 5,07%. Á hinn bóginn hefur krafan hækkað nokkuð á styttri óverðtryggðu flokkunum á sama tíma. Þannig hefur krafa RIKB11 hækkað um 22 punkta og krafa RIKB12 hækkað um 14 punkta. Krafa verðtryggða hluta markaðarins stendur hins vegar lítið breytt frá lokun markaðar á föstudag og hefur verðbólguálagið þar með þokast nokkuð niður á við, sér í lagi til lengri tíma. Athygli vekur að Seðlabankinn tilkynnti í morgun um að Lánamál ríkisins myndu fylgjast náið með þróun skuldabréfamarkaðar í dag og vera reiðubúin að bregðast við sviptingum á honum með kaupum og/eða sölu á ríkisbréfum. Þessi tilkynning hefur væntanlega átt sinn þátt í að verðsveiflur á markaðinum urðu minni en ella hefði orðið, þar sem tilkynningar föstudagsins höfðu líklega talsverð áhrif á væntingar um bæði framboð og eftirspurn ríkistryggðra bréfa næsta kastið.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira