Hagnaður Hampiðjunnar 425 milljónir í fyrra 28. mars 2011 07:56
Hagnaður Hampiðjunnar á síðasta ári var 2,6 milljónir evra eða um 425 milljónir kr. Árið áður var hagnaðurinn ívið meiri eða 3,0 milljónir evra. Í tilkynningu um uppgjörið segir að rekstrartekjur samstæðunnar voru 40,1 milljón evra eða um 6,5 milljarðar kr. og jukust um 6,5% á milli ára. Heildareignir voru 80,4 milljónir evra í árslok. Skuldir námu 40,2 milljónum evra og lækkuðu um 0,5 milljónir frá fyrra ári. Eigið fé nam 40,2 milljónum evra, en af þeirri upphæð eru 6 milljónir evra hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaga. Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin með eigin fé, var í árslok 50% af heildareignum samstæðunnar. „Rekstur netaverkstæðanna gekk vel á Íslandi, Írlandi, Danmörku, Nýja Sjálandi og Kanada. Minniháttar tap var á rekstri netaverkstæðanna í Namibíu og Bandaríkjunum,“ segir Jón Guðmann Pétursson, forstjóri Hampiðjunnar í tilkynningunni. „Þá tókst vel til með rekstur verksmiðjunnar í Litháen og hefur sameining og útvíkkun á framleiðslu Hampiðjunnar, sem hófst með kaupum á nælonnetahluta Utzon árið 2003, bætt samkeppnishæfni samstæðunnar umtalsvert. Sala á ofurtógi út fyrir sjávarútveginn, mest til olíuiðnaðar, gekk vel á síðasta ári og jókst frá árinu áður. Heilt yfir gekk rekstur samstæðunnar vel á árinu.“
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira