Björgólfur Thor segir rannsókn SFO koma á óvart 27. mars 2011 18:45
Björgólfur Thor Björgólfsson segir rannsókn Serious Fraud Office á starfsemi Landsbankans koma á óvart. Engar skýrslur hafa verið teknar af stjórnendum Landsbankans í tengslum við rannsóknina, en stofnunin rannsakar millifærslur af Icesave-reikningunum rétt fyrir hrun. Það var breska dagblaðið Daily Telegraph sem greindi fyrst frá því að Serious Fraud Office hefði hafið rannsókn á starfsemi Landsbankans fyrir hrun. Blaðið segir að rannsakendur vilji greina peningafærslur, tengdar Icesavereikningunum, sem voru gerðar rétt áður en Fjármálaeftirlitið á Íslandi tók bankann yfir. Ekki er ljóst hvaða millifærslur blaðið er að vísa í, en ekki er vikið að þessu í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Björgólfur Thor Björgólfsson, sem var stærsti hluthafi Landsbankans ásamt föður sínum, segir í nýrri grein á vef sínum að rannsóknin komi á óvart. Breska fjármálaeftirlitið hafi verið í nánu sambandi við stjórnendur Landsbankans sumarið 2008 og þar til bankinn féll um haustið. FSA hefði ekki komist hjá því að koma auga á óeðlilega fjármagnsflutninga, hefðu þeir átt sér stað. Þá hafi athugun slitastjórn Landsbankans og Deloitte í Lundúnum á millifærslum af Icesave-reikningunum ekki leitt neitt misjafnt í ljós. Samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar er sérstakur saksóknari ekki með neina sjálfstæða rannsókn á Icesave-reikningunum eða millifærslum af þeim. Og eftir því sem fréttastofa kemst næst kemur embættið ekki nema að mjög takmörkuðu leyti að rannsókn Seriuos Fraud Office. Sérstakur saksóknari er að rannsaka meinta allsherjar markaðsmisnotkun Landsbankans yfir nokkurra ára tímabil sem beinist að lánveitingum til félaga sem keyptu síðan hlutabréf bankans en grunsemdir eru um að þetta hafi verið gert til að hífa upp hlutabréfaverðið. Sigurður G. Guðjónsson, verjandi Sigurjóns Þ. Árnasonar, sagði við fréttastofu í dag að SFO hefði engar skýrslur tekið af Sigurjóni í tengslum við sína rannsókn. Sigurjón hefur tvívegis komið í skýrslutöku hjá embætti sérstaks saksóknara, fyrst árið 2009 í tengslum við rannsókn á félaginu Imon og svo í janúar síðastliðnum er hann var hnepptur í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn á meintri markaðsmisnotkun. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur Halldór J. Kristjánsson, sem búsettur er í Kanada, ekki verið boðaður í skýrslutöku heldur.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira