Breska lögreglan rannsakar Landsbankann Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. mars 2011 00:01 Landsbanki Íslands.
Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, eða Serious Fraud Office, er byrjuð að rannsaka hrun Landsbankans. Fréttavefur breska blaðsins Daily Telegraph segir að rannsóknin snúi að starfsemi Landsbankans dagana og vikurnar áður en bankinn hrundi í október 2008. Blaðið segir að rannsakendur vilji greina peningafærslur, tengdar Icesavereikningunum, sem voru gerðar rétt áður en Fjármálaeftirlitið á Íslandi tók bankann yfir. Daily Telegraph segir að breska efnahagsbrotadeildin vinni rannsóknina í samstarfi við rannsóknaraðila á Íslandi og í Lúxemborg. Þá segir Telegraph að á Íslandi sé verið að rannsaka lánsveitingar frá Landsbankanum sem notaðar voru til þess að fjárfesta í bréfum í bankanum sjálfum og hækka þannig hlutabréfaverðið. Telegraph bendir á að líkt og í Glitni og Kaupþingi hafi stærstu hlutafjáreigendur í Landsbanka einnig verið stærstu lánþegar hjá bankanum. Stærstu hluthafarnir í bankanum voru Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor sonur hans. Eins og kunnugt er rannsakar efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar einnig Kaupþing. Fyrir fáeinum vikum voru þrír Íslendingar handteknir vegna þeirrar rannsóknar í Bretlandi, auk Tchenguizbræðranna og tveggja náinna breskra samstarfsmanna þeirra. Þá voru tveir handteknir á Íslandi vegna sömu rannsóknar. Þeim var öllum sleppt samdægurs.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira