Lokka til sín kúnna frá Landsbankanum Þorbjörn Þórðarson skrifar 25. mars 2011 12:06 Byr opnaði á dögunum útibú í Reykjanesbæ.
Mikill fjöldi Suðurnesjamanna flutti sparifé sitt og bankaviðskipti yfir til Byrs sparisjóðs frá Landsbankanum í gær en ráðning fjögurra þekktra þjónustufulltrúa hjá Sparisjóðnum í Keflavík virðist hafa haft mikið að segja. Fjármálaeftirlitið tók yfir Byr sparisjóð í apríl 2010 eftir að samningaviðræðum við kröfuhafa lauk án árangurs. Var síðan stofnað nýtt hlutafélag, Byr hf., og innistæður og aðrar skuldbindingar fluttar þangað, en hið nýja hlutafélag fékk viðskiptabankaleyfi. Eftir að Sparisjóðurinn í Keflavík var sameinaður Landsbankanum fyrir nokkrum vikum sá Byr hf. sér á leik á borði og réð fjóra þjónustufulltrúa hjá Sparisjóðnum yfir í nýtt útibú Byrs í Reykjanesbæ. Í gær birtist svo heilsíðuauglýsing í Fréttablaðinu með starfsmönnunum fjórum þar sem Suðurnesjamenn eru boðnir velkomnir í viðskipti í nýtt útibú Byrs. Margir Suðurnesjamenn fluttu svo sparifé sitt frá Landsbankanum yfir til Byrs í gær og var á tímabili biðröð út úr útibúinu af áhugasömum verðandi viðskiptavinum. Ljóst er að um er að ræða mjög góða fjárhagslega innspýtingu fyrir hið unga hlutafélag, Byr hf. Trausti Haraldsson, markaðsstjóri Byrs, sagði við fréttastofu í dag að Byr myndi ekki gefa upp fjárhæðir innistæðna sem hefðu bæst við, en sagði móttökurnar við opnun útibúsins mjög góðar. Að sögn Trausta var útibú Byrs í Reykjanesbæ opnað með samþykki Fjármálaeftirlitsins og slitastjórnar Byrs sem fer með 95 prósenta hlut í Byr hf. Þegar Landsbankinn tók yfir Sparisjóðinn í Keflavík tók hann yfir skuldbindingar vegna innistæðna upp á sextíu milljarða króna, sem er um einn tíundi af heildarinnistæðum í bankanum. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum var langstærstur hluti innistæðna Sparisjóðsins í Keflavík hjá útibúum á Suðurnesjum.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira