Hagnaður Skipta 5 milljarðar 25. mars 2011 11:17
Hagnaður Skipta hf. fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 5,1 milljarði króna á síðasta ári. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu frá Skiptum sem send hefur verið til Kauphallar. Kristín Guðmundsdóttir, forstjóri Skipta, segir árið 2010 hafa farið ágætlega af stað og fyrstu mánuði ársins hafi ekki orðið vart við mikinn samdrátt hjá dótturfélögum Skipta á Íslandi. „Það breyttist þegar líða tók á vorið og eftirspurnin minnkaði sem setur svip sinn á afkomu Skipta. Hins vegar hefur félagið unnið markvisst að lækkun kostnaðar undanfarin ár sem dregur úr áhrifum tekjulækkunar á afkomuna. Skipti hafa selt stærstan hluta af starfsemi sinni utan Íslands með umtalsverðum söluhagnaði. Verkefnið framundan er að halda áfram að einbeita sér að kjarnastarfsemi félagsins á Íslandi," segir hún. Aðalfundur félagsins var haldinn í morgun. Í stjórn Skipta voru kjörin þau Skúli Valberg Ólafsson, Pétur J. Eiríksson, Þorvarður Sveinsson, Örn Guðmundsson og Jóhanna Waagfjörð. Á fundi stjórnar sem haldinn var að loknum aðalfundi var Skúli Valberg kjörinn formaður og Pétur varaformaður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 5,1 milljarði króna samanborið við 8,7 milljarða árið áður. Lækkun EBITDA skýrist meðal annars af því að Skipti seldu Sirius IT auk þess sem varúðarfærsla vegna gerðardóms og sektir höfðu áhrif á afkomu ársins. EBITDA hlutfallið var 15% en var 20% sé ekki tekið tillit til einskiptiskostnaðar. Bókfært tap Skipta á árinu nam 2,5 milljörðum króna sem skýrist einkum af virðisrýrnun óefnislegra eigna, sem nam 4,9 milljörðum króna. Tap félagsins nam 10,2 milljörðum króna árið áður. Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 6,0 milljörðum króna, samanborið við 9,1 milljarð árið áður. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 3,5 milljörðum króna. Fjármagnstekjur voru 1,4 milljarðar króna en þar af nam söluhagnaður 5,2 milljörðum króna. Vaxtaberandi skuldir að frádregnum innistæðum (nettó vaxtaberandi skuldir) námu 44,3 milljörðum um áramót en voru 54,4 milljarðar árið áður. Lækkunin skýrist einkum af sölu eigna. Eiginfjárhlutfall Skipta hf. er 21 % og eigið fé er 22,3 milljarðar króna.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira