Greiðslur til kröfuhafa hefjast í lok árs 24. mars 2011 17:45
Greiðslur til kröfuhafa Glitnis geta væntanlega hafist í desember á þessu ári. Verðmæti eignasafnsins nam 814 milljörðum um síðustu áramót en samtals nema kröfur í búið 3600 milljörðum. Verðmætið er þó háð mikillri óvissu. Þetta kom fram á upplýsingafundi skilanefndar og slitastjórnar Glitnis sem fram fór í dag. Verðmæti eignanna er meira en öll áætluð útgjöld hins opinbera 2010 og er að meirihluta í erlendri mynt. „Þessar erlendu myntir geymum við erlendis nú þegar þannig að þær valdi sem minnstri röskun hér á Íslandi," segir Kristján Óskarsson, framkvæmdastjóri Glitnis. Það þýðir að þegar til útgreiðslu kemur munu þessar myntir ekki hafa áhrif á íslenskt hagkerfi og gengi krónunnar. Sala á stærstu íslensku eigninni, Íslandsbanka, hefur þó umtalsverð áhrif á gjaldeyrisjafnvægi Glitnis og þar með verðmæti eignasafnsins.Steinunn Guðbjartsdóttir formaður slitastjórnar Glitnis. Mynd/ Sigurjón Ólason.Áætlað er að hefja útgreiðslu á handbæru fé til kröfuhafa í lok þessa árs. „Það byggist þó á því að við höfum fengið endanlega niðurstöðu um það hverjir njóta forgangsréttar við slitameðferð Glitnis og eins að við höfum náð endanlegri niðurstöðu um 60-75 prósent krafna í bú Glitnis," sagði Steinunn Guðbjartsdóttir formaður slitastjórnar Glitnis eftir fundinn í dag. Hún segir að í næstu viku sé að vænta úrskurðar Héraðsdóms um hvort að svokölluð heildsölulán bankans njóti forgangsréttar eða ekki og þeir kröfuhafar fái fulla greiðslu á kröfum sínum. „Það er okkar skoðun í Glitni að þessar kröfur séu ekki þess eðlis að þær njóti forgangs og við teljum að eðli þessara gerninga sé þannig að þar sé mun frekar um lán að ræða en innistæðu í þeim skilningi sem lögð er í það hugtak."
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira