Nýtt hótel á Akureyri - fjármögnun tryggð 24. mars 2011 15:16 Nýja hótelið er á Akureyri, í gamla Iðnskólanum Mynd úr safni
Í dag var skrifað undir langtímafjármögnunarsamning vegna byggingar og rekstrar nýs hótels á Akureyri. Lánveitandi er Landsbankinn. Eigandi byggingarinnar er Eignasamsteypan, en hótelið verður rekið af Icelandair Hotels. Heildarfjárfesting í þessu verkefni er 900 milljónir króna. Icelandairhótel Akureyri er í gamla Iðnskólanum, síðar Háskólanum á Akureyri, á horni Þingvallastrætis og Þórunnarstrætis. Hótelið mun bjóða uppá alls 101 herbergi, 63 herbergi verða tilbúin þann 1. júní næstkomandi, og önnur 38 þann 1. júní 2012. Auk þeirra herbergja sem tilbúin verða á komandi vori verður jafnframt tekin í notkun veitingasalur og bar, en einnig eru áform um byggingu á fallegum hótelgarði í nánustu framtíð. Árni Þór Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Fyrirtækjabanka Landsbankans, segir; „Ferðaþjónustan er allt í senn, gríðarlega mikilvæg, ört vaxandi og mjög spennandi starfsgrein og það er fagnaðarefni fyrir bankann að styðja metnaðarfulla uppbyggingu á þessu sviði. Þetta verkefni fellur mjög vel að því markmiði Landsbankans að hann sé hreyfiafl í samfélaginu og ýti undir fjárfestingu í arðvænlegum rekstri." „Við höfum lengi haft augastað á Akureyri sem vænlegri staðsetningu fyrir nýtt hótel í okkar keðju, en jafnframt viljað vanda valið á byggingu og samstarfsaðilum", segir Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandairhótela. „Icelandairhótel Akureyri er því kærkomin viðbót í okkar rekstur, og við hlökkum til að leggja okkar að mörkum við að byggja enn frekar upp það góða starf sem átt hefur sér stað í ferðaþjónustu Akureyrarbæjar fram til þessa", segir Magnea að lokum.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira