Áhættuálag hækkar í Evrópulöndum en lækkar á Íslandi 23. mars 2011 12:28
Skuldatryggingaálagið á íslenska ríkið hefur lækkað undanfarið og er Ísland í raun eina tilfellið um lækkun af öllum ríkjum Vestur Evrópu sem seldar eru skuldatryggingar á. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þannig stóð álagið á Ísland í lok dags í gær í 228 punktum, sem er það lægsta sem það hefur verið frá því í lok júní árið 2008, að álaginu þann 15. febrúar síðastliðnum undanskildum en þá fór það niður í 224 punkta. Rétt er þó að hafa í huga að verðmyndun á skuldatryggingarálagi á Ísland er lítt virk og viðskipti með þær skuldatryggingar strjál. Skuldatryggingaálagið á ríki Vestur Evrópu hækkaði að jafnaði í gær úr 189 punktum í 195 punkta samkvæmt göngum úr Bloomberg-gagnaveitunni. Má þessa hækkun einna helst rekja til álagsins á Portúgal sem hækkaði úr 500 punktum í 533 punkta. Er þetta með því hæsta sem álag Portúgals hefur farið upp í, en hæst hefur dagslokagildi þess farið í 555 punkta snemma á þessu ári. Þó hefur það meira en minna verið undir 500 punktum það sem af er ári. Portúgal er eitt þeirra evruríkja sem hefur staðið í erfiðleikum vegna mikilla skulda ríkisins, og eru jafnframt margir stórir gjalddagar skuldanna á næstu mánuðum. Hefur ríkisstjórnin þar í landi líkt og í mörgum öðrum löndum orðið að skera niður, en nýjustu tillögur hennar þess efnis hafa ekki farið vel í stjórnarandstöðuna þar í landi sem neitar að skrifar undir þær. Er því ljóst af þessu að pólitíska áhættu er víðar að finna en bara hér á landi, enda hefur hún almennt verið að aukast í heiminum á undanförnum misserum. Fyrir utan skuldatryggingaálagið á Portúgal hækkaði álagið einnig þó nokkuð á Grikkland og svo Írland sem glíma við svipaðar aðstæður. Álagið á fyrrnefnda landið stóð í lok dags í gær í 972 punktum en hið síðarnefnda í 616 punktum og skipa þau enn tvö efstu sætin á lista Vestur Evrópuríkja yfir hæsta skuldatryggingaálagið líkt og undanfarið.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira