Hæstiréttur vísar frá kærum í Tchenguiz málum 21. mars 2011 13:49
Hæstiréttur Íslands hefur með dómi fyrir helgina vísað frá tveimur kærum Rawlinson & Hunter Trustees S.A. (Rawlinson & Hunter) í málum sem varða kröfur gegn Kaupþingi banka hf. (Kaupþing). Rawlinson & Hunter stýra sjóðunum Tchenguiz Discretionary Trust og Tchenguiz Family Trust en sjóðirnir tengjast bræðrunum Robert og Vincent Tchenguiz. Fjallað er um málið á vefsíðu Kaupþings. Þar segir að kröfur Rawlinson & Hunter gegn Kaupþingi eru til meðferðar í tveimur dómsmálum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Rawlinson & Hunter kærði úrskurði héraðsdóms frá 10. febrúar síðastliðnum þar sem kröfu Rawlinson & Hunter um frestun málanna gegn Kaupþingi var hafnað. Krafan um frestun byggði á því að mál um sömu kröfur væri til meðferðar fyrir dómi í Englandi. Málaferlin í Englandi hófust hins vegar í júlí 2010 en þá höfðu Rawlinson & Hunter þegar lýst kröfum gegn Kaupþingi í desember 2009. Kröfunum var hafnað af slitastjórn í mars 2010. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að stoð fyrir kæruheimild yrði] með engu móti fundin í lögum um meðferð einkamála sem Rawlinson & Hunter byggði kæru sína á. Þá dæmdi Hæstiréttur Rawlinson & Hunter einnig til greiðslu kærumálskostnaðar, með orðunum að „við ákvörðun hans er tekið tillit til þess að kæra þessi er gersamlega að ófyrirsynju“. Áhrif dóms Hæstaréttar eru þau að dómsmál um kröfur Rawlinson & Hunter á hendur Kaupþingi heldur áfram í efnismeðferð fyrir héraðsdómi, án tillits til málaferla í Englandi um sömu kröfur.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira