Bjarki Diego vann skattamál í Hæstarétti Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. mars 2011 16:45 Bjarki Diego starfaði hjá Kaupþingi.
Hæstiréttur Íslands sneri við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Bjarka Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Kaupþingi, gegn íslenska ríkinu. Héraðsdómur hafði áður staðfest úrskurð skattayfirvalda sem kröfðust þess að samningar sem Bjarki gerði meðan hann var starfsmaður Kaupþings yrðu skattlagðir sem launatekjur en ekki sem fjármagnstekjur. Líta bæri á undirliggjandi ráðstafanir sem sölurétturinn tryggði sem kaupréttartekjur. Bjarki hafnaði málatilbúnaði skattayfirvalda og stefndi íslenska ríkinu vegna úrskurðarins.. Hann fullyrti fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að samningar sem hann gerði á árunum 2001 og 2003 um kaup á hlutabréfum í Kaupþingi væru í grundvallaratriðum ólíkir kaupréttarsamningum. Máli sínu til stuðnings vísaði hann meðal annars til þess að stjórnendur bankans hefðu ætlast til þess að bréfin yrðu í hans eigu á meðan að hann starfaði hjá bankanum. Hreiðar Már Sigurðsson, sem var aðstoðarforstjóri Kaupþings þegar samningarnir voru gerðir, bar vitni í málinu fyrir héraðsdómi. Hann tók undir rök Bjarka og sagði að stjórnendur bankans hefðu ekki ætlast til þess að hann, eða aðrir starfsmenn Kaupþings sem gerðu svipaða samninga og Bjarki á árunum 2001 - 2003, seldu bréfin. Héraðsdómur féllst ekki á forsendur Bjarka. Hæstiréttur segir að í málinu hafi verið vísað til þess að hlutabréfakaup Bjarka hefðu ekki orðið endanleg fyrr en við lok tímabilsins þegar Bjarki mátti neyta söluréttarins og að þá yrði að telja Bjarka til tekna mismuninn á markaðsverði hlutabréfanna á því tímamarki og umsömdu kaupverði. Að mati Hæstaréttar stóðst þessi forsenda ekki, enda hafði eignarréttur að hlutabréfunum færst yfir til Bjarka og Kaupþingi verið greitt kaupverð fyrir bréfin við upphaf samningssambandsins. Hæstiréttur felldi úr gildi úrskurð ríkisskattstjóra og var íslenska ríkinu gert að greiða Bjarka það sem hann hafði greitt í kjölfar úrskurðarins, eða um 45 milljónir króna með vöxtum.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira