Innovit hagkerfið áætlar að velta 1,1 milljarði í ár 30. mars 2011 09:18
Alls starfa 168 einstaklingar innan Innovit-hagkerfisins í 117 stöðugildum. Velta Innovit hagkerfisins var 535 milljónir króna árið 2010. Áætluð velta Innovit hagkerfisins er yfir 1,1 milljarður króna árið 2011. Þetta kemur fram í nýútkominni rannsókn á Innovit-hagkerfinu þar sem sjá má greinileg merki um öran vöxt nýrra sprotafyrirtækja á Íslandi og mikilvægi þeirra í atvinnusköpun hér á landi. Innovit-hagkerfið samanstendur af þeim fyrirtækjum sem stigið hafa sín fyrstu skref í frumkvöðlakeppninni um Gulleggið á undanförnum árum eða nýtt sér reglubundna ráðgjöf og stuðning frá Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlasetri. Fjöldi nýrra starfa innan Innovit-hagkerfisins hefur aukist um 63% á milli ára og starfa nú alls 168 einstaklingar hjá 38 sprotafyrirtækjum. Öll eru þessi fyrirtæki komin með virkan rekstur en til viðbótar eru fjölmargir frumkvöðlar að undirbúa stofnun sinna fyrirtækja. Fjárfestar hafa fjárfest fyrir 972 milljónir króna í Innovit-hagkerfinu. Sölutekjur fyrirtækja innan Innovit-hagkerfisins voru 312 milljónir króna. Fyrirtæki innan Innovit-hagkerfisins hafa fengið 282 milljónir króna í styrki. Velta Innovit hagkerfisins eykst einnig verulega á milli ára og fór í fyrsta sinn yfir hálfan milljarð króna árið 2010. Þá gera framkvæmdastjórar fyrirtækjanna ráð fyrir að samanlögð heildarvelta verði yfir 1100 milljónir króna á þessu ári. Áhugi fjárfesta rennir styrkum stoðum undir að þessi hraði vöxtur verði að veruleika á árinu, en samanlagt hafa einkaaðilar og fagfjárfestingarsjóðir fjárfest í Innovit hagkerfinu fyrir 972 milljónir króna. “Við erum afskaplega stolt af árangri þessara glæsilegu fyrirtækja innan Innovit-hagkerfisins og vil ég sérstaklega vekja athygli á því kraftmikla athafnafólki sem hefur stofnað þessi fyrirtæki og þar með skapað sjálfu sér og öðrum atvinnu,“ segir Andri Heiðar Kristinsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Innovit í tilkynningu um málið. „Ný störf verða ekki sköpuð af hinu opinbera með einni handbendingu eins og stundum er látið í veðri vaka, heldur af athafnasömum og dugmiklum einstaklingum með góðar viðskiptahugmyndir. Hlutverk hins opinbera er að skapa þessum einstaklingum góða umgjörð fyrir rekstur sinna fyrirtækja. Ég hef orðið var við töluverðan óróleika hjá stjórnenedum nýrra fyrirtækja vegna þessa og því er það mikið áhyggjuefni að kynna þessar jákvæðu niðurstöður í skugga áframhaldandi gjaldeyrishafta og síhækkandi skatta.”
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira