Spáir því að verðbólgan fari yfir markmið Seðlabankans 30. mars 2011 08:31
Greining Arion banka telur að á næstu mánuðum sé líklegt að ársverðbólgan fari a.m.k. tímabundið yfir verðbólgumarkmið Seðlabankans. Verðbólgan nái hámarki í júní þegar hún verði 3,6%. Það eru hækkanir á hrávörum erlendis, eins og eldsneyti, sem keyri verðbólguna upp. Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningarinnar þar sem finna má bráðabirgðaspá um þróun verðbólgunnar á næstu mánuðum. „Óvissa í spá okkar snýr einna helst að sveiflum á erlendum hrávörumörkuðum,“ segir í Markaðspunktunum. „ Við gerum ekki ráð fyrir að olíuverð hækki mikið meira, a.m.k. í bili, í bráðabirgðaspánni. Gangi spá okkar eftir mun ársverðbólga mælast yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans á næstu mánuðum en í júní mun 12 mánaða verðbólga mælast 3,6%. Að okkar mati ætti það þó ekki að skapa hættu á snöggri stefnubreytingu af hálfu Seðlabankans. Einkum þar sem við teljum ólíklegt að verðhækkunarspírall myndist hér heima sökum hækkandi hrávöruverðs úti í heimi. Seðlabankinn hefur einmitt ítrekað sagt að hann bregðist ekki við verðhækkunum á erlendum mörkuðum nema þeir sjái merki þess efnis að verðbólgan sé að festa sig í sessi hér heima, en engin merki eru enn um slíkar hækkanir." Greiningin segir að í þessu samhengi er mikilvægt að skoða hvernig kjarnaverðbólgan hefur verið að þróast, en kjarnaverðbólga sýnir verðbreytingar m.a. án áhrifa eldsneytisverðshækkana. Í dag er ársbreyting kjarnaverðbólgunnar +1,5%. „Gangi bráðabirgðaspá okkar eftir mun 12 mánaða verbólga mælast 3,6% í júní en kjarnaverðbólgan mælast í kringum 2%,“ segir í Markaðspunktunum.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira