Erlend lausafjárstaða Íslands sjaldan sterkari 7. apríl 2011 16:45 Már Guðmundsson flutti ávarp sitt fyrir stundu.
Erlend lausafjárstaða þjóðarbúsins hefur stórbatnað en forðinn var í lok febrúar 719 milljarðar króna, sem samsvarar 46 prósentum af landsframleiðslu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ávarpi Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, á 50 ára afmælishátíð Seðlabanka Íslands í dag. þar segir að lausafjárstaðan hér sé jafnvel sterkari en í lok seinni heimstyrjaldarinnar. Aukinn forði, meiri stöðugleiki, framgangur áætlunar um afgang á ríkissjóði á komandi árum og uppkaup erlendra skulda ríkissjóðs á eftirmarkaði hafa síðan orðið til þess að raddir um greiðsluþrot ríkissjóðs hafa þagnað, sagði Már og bætti við: Þetta ræður miklu um það að nú er talið óhætt að vinna að losun gjaldeyrishafta og að skilyrði fyrir erlenda lántöku ríkissjóðs hafa batnað verulega en hún gæti rutt öðrum innlendum aðilum brautina. Svo segir orðrétt: „Þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave-samninginn um næstu helgi gæti auðvitað sett strik í þennan reikning. Verði niðurstaðan já munu haftaafnám og lántökur ríkissjóðs ganga fram eins og áformað er. Ef Icesave-samningnum verður hafnað eru hins vegar vísbendingar um að stóru bandarísku matsfyrirtækin tvö ákveði að setja lánshæfismat ríkissjóðs niður í spákaupmennskuflokk. Þá verður þyngra fyrir fæti varðandi erlenda lántöku ríkissjóðs og framgangur áætlunar um afnám gjaldeyrishafta myndi af þeim sökum ganga hægar. Óvissa er hins vegar um hversu sterk og langvinn þessi áhrif yrðu." Hér fyrir neðan má lesa ávarp Más í heild sinni. Fyrir þá sem vilja horfa á athöfnina geta fylgst með hér.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira