AGS þarf mögulega að gefa afslátt í apríl 7. apríl 2011 14:09
Fimmta endurskoðunin á áætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) er framundan í þessum mánuði. Svo virðist sem AGS þurfi að gefa afslátt af skilyrðum sínum fyrir því að samþykkja þessa endurskoðun. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að í febrúar síðastliðnum tilkynnti sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi að stjórn AGS myndi fjalla um fimmtu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands á fundi sínum í apríl. Efnahagsáætlun AGS og stjórnvalda er nú rúmlega hálfnuð og eftir eru þrjár endurskoðanir. Áætlað er að áætlunin renni sitt skeið í ágúst næstkomandi en vel gæti farið svo að að einhver töf verði á því að mati okkar. Ýmis skilyrði sem voru sett til þess að fimmta endurskoðunin eigi fram að ganga og hafa sum verið uppfyllt en önnur ekki. Þau sem hafa verið uppfyllt er að ríkisstjórnin hefur samþykkt nýja áætlun um afléttingu gjaldeyrishafta, gengið hefur verið frá eiginfjárframlagi til Íbúðalánasjóðs (ÍLS) og framtíð SpKef hefur verið ráðin. Hins vegar hefur endurfjármögnun sparisjóða enn ekki verið að fullu lokið, auk þess sem tveggja ára áætlun um endurskipulagningu sparisjóðakerfisins hefur ekki litið dagsins ljós. Þá hefur lagafrumvarp um að færa ÍLS að fullu undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins ekki enn litið dagsins ljós, en leggja átti það fram fyrir síðustu mánaðamót. „Töluverðar líkur virðast á því að ekki verði öll skilyrði fimmtu endurskoðunar uppfyllt fyrir páskaleyfi að tveimur vikum liðnum. Hvort AGS mun veita afslátt af þeim skilyrðum sem út af standa eða hvort endurskoðunin frestast kemur væntanlega í ljós innan tíðar," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira