Samkeppnishæfir í skattlagningu á olíuvinnslu 18. apríl 2011 07:41
Ríkissjóður Íslands fengi þrjátíu til fjörutíu prósent í skatta af olíulindum á Drekasvæðinu, samkvæmt frumvarpi sem fjármálaráðherra hefur flutt á Alþingi. Þar er lagt til að skattar af olíuvinnslu verði lækkaðir frá því sem áður var áformað svo Ísland verði samkeppnisfært við nágrannaríki eins og Færeyjar og Grænland. Fyrsta olíuleitarútboð Íslendinga fyrir tveimur árum skilaði umsóknum frá tveimur olíufélögum sem á endanum hættu bæði við. Þegar skýringa var leitað kom fram í viðtölum við fulltrúa Sagex Petrolium, þess félags sem mestan áhuga sýndi útboðinu, að skattheimtan sem Íslendingar áformuðu var meðal þess sem fældi frá. Íslenskt stjórnvöld hafa nú tilkynnt að nýtt útboð fari fram á Drekasvæðinu í haust, og í tengslum við það hefur fjármálaráðherra lagt fyrir Alþingi að skattheimtu af olíuvinnslu verði breytt verulega, hún bæði lækkuð og einfölduð. Lagt verði á fimm prósenta framleiðslugjald, sem þýddi að ríkið fengi strax tekjur af vinnslunni, óháð hagnaði. Þegar hagnaður myndast leggst á tuttugu prósenta almennur tekjuskattur og loks leggst á stighækkandi kolvetnisskattur, 0,45 af hagnaðarprósentu, og hækkar skatturinn eftir því sem hagnaðarhlutfall eykst af vinnslunni. Ætla má að gjöfular olíulindir í hafi gætu haft tíu til fimmtíu prósenta hagnaðarhlutfall, sem þýddi þá kolvetniskatt frá fimm og yfir tuttugu prósent. Ef slíkt yrði raunin á Drekasvæðinu gæti ríkissjóður vænst þess að fá í heildarskatta þrjátíu til fjörutíu prósent af tekjunum. Fjármálaráðherra segir skattkerfið þýða að ríkissjóður fái ásættanlega hlutdeild í hagnaði og að Ísland verði samkeppnishæft við nágrannaríki, og tiltekur Noreg, Færeyjar, Kanada, Írland og Grænland.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Sjá meira