Seðlabankinn vill greiða upp skuldir Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. apríl 2011 11:58 Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Seðlabanki Íslands, fyrir hönd ríkissjóðs, býðst til að kaupa á nafnverði, að hluta eða í heild, þau erlendu skuldabréf ríkissjóðs sem falla í gjalddaga árin 2011 og 2012. Um er að ræða tvö skuldabréf í evrum sem upphaflega voru að fjárhæð 1.250 milljónir evra, eða um 204 milljarðar króna að nafnvirði. Seðlabankinn hefur þegar keypt hluta þessara bréfa á markaði, en enn eru um 800 milljónir evra (130 ma.kr.) útistandandi. Þessi kaup eru þáttur í lausafjár- og skuldastýringu ríkisjóðs, en einnig liður í gjaldeyrisforðastýringu Seðlabanka Íslands. Í fréttatilkynningu frá Seðlabankanum kemur fram að gjaldeyrisforði Seðlabankans hafi numið 767 milljörðum krónaí lok mars 2011. Seðlabankinn og ríkissjóður séu því í góðri stöðu til að greiða þau erlendu lán sem falla í gjalddaga samkvæmt lánasamningum á næstu árum, þar á meðal þau skuldabréf sem hér um ræði. Endurkaupin skapi einnig tækifæri til að bæta ávöxtun gjaldeyrisforðans í núverandi lágvaxtaumhverfi. „Að auki er höfð hliðsjón af nýlegum tilkynningum frá lánshæfismatsfyrirtækjum og gefur tilboðið eigendum verðbréfanna færi á að selja þau á nafnverði með skipulögðum hætti ef þeir svo kjósa. Útboðið getur einnig gefið ríkissjóði upplýsingar um afstöðu erlendra fjárfesta gagnvart Íslandi í því ástandi sem nú er uppi sem einkennist annars vegar af verulega bættri stöðu efnahagsmála og hins vegar af óvissum horfum varðandi lánshæfismat ríkissjóðs í kjölfar þess að Icesave-samkomulaginu var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu," segir í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands. Tilboðið stendur til 5. maí næstkomandi og verður niðurstaða þess kynnt opinberlega daginn eftir.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Sjá meira