Þorskkvótinn gæti farið í 190.000 tonn 14. apríl 2011 07:41
Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ segir að þorskkvótinn gæti farið í allt að 190.000 tonn á næsta fiskveiðiári. Kvótinn er 160.000 tonn á yfirstandandi ári. Þetta mat byggir hann á niðurstöðum úr vorralli Hafrannsóknarstofnunnar sem kynnt var í gærdag. Fjallað er um málið á vefsíðu LÍÚ. Þar segir að samkvæmt stofnmælingu botnfiska á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar í síðasta mánuði hækkaði stofnvísitala þorsks fjórða árið í röð. „Þetta eru afar jákvæðar fréttir og ef þessar vísbendingar ganga eftir gæti viðmiðunarstofn þorsks verið á bilinu ein milljón til ellefu hundruð þúsund tonn, sem er umtalsvert meira en spár í fyrra gerðu ráð fyrir. Það gæti gefið um 180-190 þúsund tonna aflamark í þorski á næsta fiskveiðiári miðað við óbreytta aflareglu. Þetta kemur hinsvegar ekki í ljós fyrr en eftir að stofnmatið hefur verið klárað og auðvitað vonumst við eftir enn hærra aflamarki" segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Friðrik segir LÍÚ telja að aflamarkið í þorski hafi verði of lágt á undanförnum árum og að þetta staðfesti það mat. Friðrik segir LÍÚ hafa farið þess á leit við sjávarútvegsráðherra í júní í fyrra að aflaregla í þorski verði endurskoðuð. Friðrik segir vísbendingar um ástand gullkarfastofnsins einnig ánægjulegar og staðfesta það sem skipstjórnarmenn hafa lýst. Hann segir að LÍÚ og Farmanna- og fiskimannasamband Íslands hafi farið þess á leit við sjávarútvegsráðherra að karfakvótarnir á þessu fiskveiðiári verði auknir í það sama og þeir voru á síðasta fiskveiðiári eða 50 þúsund tonn samtals í gull- og djúpkarfa.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Sjá meira