Auður tapaði 76 milljónum Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. apríl 2011 16:29 Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital, ásamt Höllu Tómasdóttur stjórnarformanni.
Það var 76 milljóna króna tap á rekstri Auðar Capital á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins sem birtur hefur verið. Niðurstaðan er öllu betri en árið 2009 en þá hafði verið 88 milljóna króna tap á rekstri félagsins. Eigið fé Auðar Capital er rétt rúmur milljarður króna. Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital, segist á vefsíðu félagsins vera sátt við rekstrarárangurinn. „Þetta er annað heila starfsár okkar og frá upphafi gerðum við stjórnendur og hluthafar félagsins ráð fyrir því að uppbygging tæki bæði tíma og kallaði á fjárfestingu. Við höfum lagt mikla áherslu á að byggja upp tekjustofna til framtíðar og það hefur tekist vel. Viðskiptavinum hefur fjölgað jafnt og þétt og eignir í stýringu vaxið að sama skapi,“ segir Kristín. Hún segir að félagið njóti trausts ánægðra viðskiptavina sem skipti sköpum. „Ennfremur fjárfesti AUÐUR I í áhugaverðum fyrirtækjum á árinu sem við teljum að muni skila okkur tekjum til lengri tíma litið," segir Kristín. Á aðalfundi Auðar sem haldinn var á miðvikudag var stjórn félagsins kjörin. Stjórnina skipa: Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, David Adams og Þóranna Jónsdóttir sem kemur ný inn í stjórn.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Sjá meira