Peningastefnunefnd heldur stýrivöxtum óbreyttum 20. apríl 2011 08:59
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana verða áfram 3,25%, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum 4,0%, vextir á lánum gegn veði til sjö daga 4,25% og daglánavextir 5,25%. Í tilkynningu segir að nokkrir misvísandi þættir höfðu áhrif á ákvörðun nefndarinnar. Annars vegar hafa verðbólguhorfur versnað, a.m.k. til skamms tíma, verðbólguvæntingar aukist og raunvextir Seðlabankans lækkað umtalsvert. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar um Icesave-samninginn hefur einnig aukið hættu á veikari gengisþróun krónunnar. Hins vegar hafa hagvaxtar- og atvinnuhorfur versnað samkvæmt grunnspá Seðlabankans sem birtist í Peningamálum í dag og hætta er á að hagvöxtur verði enn minni vegna niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar. Þrátt fyrir veikari efnahagsumsvif hafa verðbólguvæntingar aukist að undanförnu og verðbólguhorfur til næstu ára versnað. Verðbólga hefur aukist undanfarna tvo mánuði og mældist tólf mánaða verðbólga 2,3% í mars. Spáð er að verðbólga nái hámarki í rúmlega 3% síðar á þessu ári og haldist svipuð þar til í byrjun næsta árs. Meiri verðbólga en áður var spáð skýrist einkum af lægra gengi krónunnar og nýlegum verðhækkunum hrá- og olíuvöru. Að því marki sem verðhækkanirnar verða tímabundnar er ólíklegt að þær hafi viðvarandi áhrif á langtímaverðbólguvæntingar og launa- og verðmyndun. Haldist gengi krónunnar stöðugt og að gefnum þeim slaka sem er til staðar í þjóðarbúskapnum er því spáð að verðbólga lækki á ný í markmið á seinni hluta næsta árs. Hins vegar virðast launahækkanir sem felast í fyrirliggjandi drögum að kjarasamningum heldur meiri en samræmist verðbólgumarkmiðinu til lengri tíma litið. Áætlun um losun gjaldeyrishafta hefur lítil áhrif á peningastefnuna til skamms tíma, vegna þess að fyrstu skrefin í tveggja áfanga áætluninni ættu að vera nokkurn veginn hlutlaus hvað varðar áhrif á gjaldeyrisforðann. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar um Icesave-samninginn hinn 9. apríl sl. hefur heldur aukið hættu á að krónan veikist, þar sem hún gæti haft áhrif á lánshæfismat ríkissjóðs og þar með lánskjör Íslands á erlendum fjármálamörkuðum. Það kann að takmarka svigrúm peningastefnunefndarinnar á næstu misserum. Niðurstaðan gæti einnig hægt á losun gjaldeyrishaftanna. Hins vegar dregur það úr neikvæðum áhrifum að ekki er líklegt að efnahagsáætlunin með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum raskist. Óvissa er um í hvaða átt næstu vaxtabreytingar verða. Peningastefnunefndin er reiðubúin til þess að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt markmiði til lengri tíma litið.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Sjá meira