Simmi og Jói íhuga að kaupa Dominos 30. apríl 2011 15:45 Simmi og Jói hafa gert það gott með Hamborgarafabrikkunni. „
Það eru sennilega allir í veitingabransanum að skoða þetta," segir Sigmar Vilhjálmsson einn af eigendum Hamborgarafabrikkunnar, eða Simmi eins og hann er oftast kallaður, en afþreyingasíðan Menn.is greindi frá því í dag að Simmi og félagi hans Jóhann Ásbjörnsson, oftast kallaður Jói, væru að fara kaupa pítsufyrirtækið Dominos sem Landsbankinn tók yfir á dögunum. „En við erum klárlega að skoða þetta," segir Simmi og bætir við að þeir félagar, auk Skúla Gunnars Sigfússonar, meðeiganda í Hamborgarafabrikkunni, vera að skoða þann möguleika að bjóða í fyrirtækið. Hann segir það þó af og frá að það sé næsta víst að þeir munin festa kaup á fyrirtækinu eins og segir á Menn.is. Dominos var í eigu Magnúsar Kristinssonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum, en hann missti fyrirtækið í hendur Landsbankans vegna gríðarlegrar skuldsetningar félagsins. Í tilkynningu frá Landsbankanum frá því í mars kom fram að stefnt væri að því að söluferlinu lyki í júní. Sigmar segir þá félaga ekki búna að bjóða í félagið enda söluferlið ekki hafið formlega að hans sögn. Þá sagði hann ferlið frekar flókið þar sem nýir eigendur þyrftu einnig samþykki alþjóðlegu Dominos-keðjunnar til þess að fá að kaupa fyrirtækið. Sigmar útlokaði alls ekki þann möguleika að þeir félagar myndu bjóða í fyrirtækið. Pítsafyrirtækið Dominos skilur eftir sig nærri tveggja milljarða króna skuld samkvæmt ársreikningum fyrir árin 2008 og 2009 og DV greindi frá á sínum tíma.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Sjá meira