Milljónamunur á endurútreikningi lána JMG skrifar 8. maí 2011 18:31 Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður.
Milljóna munur getur verið á endurútreikningi gengistryggðra lána hjá bönkunum annars vegar og óháðum sérfræðingum hins vegar. Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður hefur nú gert reiknivél sem sýnir þennan mun. Hann segir efnahags- og viðskiptaráðherra starfa í þágu fjármálafyrirtækjanna en ekki skuldara. Guðlaugur Þór Þórðarson segir þá reiknireglu sem sett er fram í lögum um endurútreikninga gengistryggðra lána koma sér mjög illa fyrir lántakendur. Hann hefur sett upp reiknivél á heimasíðu sinni og fékk tvö lögfræðifyrirtæki til hjálpa sér við útreikninginn. „Menn láta eins og það hafi aldrei orðið eða aldrei gerst og fólk er þess vegna að greiða miklu meira eftir endurútreikninginn en það þyrfti þrátt fyrir að vera með kvittanir í höndunum um að það hafi greitt niður höfuðstólinn," segir Guðlaugur. Tökum dæmi um tuttugu og fimm milljóna króna gengistryggt myntkörfulán. Samkvæmt reiknireglu laganna er höfuðstóll lánsins nú tæpar 35 milljónir. GK endurskoðun tekur hins vegar tillit til þess að greitt hafi verið inn á höfuðstól lánsins og að vextir Seðlabankans gildi frá upphafi. Samkvæmt því stendur lánið nú í rúmum 30 milljónum. Mismunurinn: 4,5 milljónir króna. Veritas lögmenn gera ráð fyrir að Seðlabankavextirnir taki ekki gildi fyrr en eftir dóm Hæstaréttar síðasta sumar. Þá ætti höfuðstóll 25 milljóna króna lánsins nú að standa í tæpum 19 milljónum. Mismunurinn fimmtán og hálf milljón króna. „Ég hef reynt að hlusta eftir útskýringum ráðherra og hann hefur bæði borið fyrir sig skilningsleysi með áberandi hætti og sömuleiðis þá hefur hann talað um það að þetta sé eitthvað sem hann telji til hagsmuna fyrir lántakendur en það er ekki nokkur einasta leið að komast að þeirri niðurstöð," segir Guðlaugur. Er ráðherra þá að vinna í hag fjármálastofnanna? „Í það minnsta þá kemur þessi reikniregla vel út fyrir fjármálafyrirtækin en illa út fyrir lántakendur," segir Guðlaugur. Hann hvetur fólk til að skoða lánamál sín vel.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Sjá meira