Landsbankinn setur Björgun ehf. í sölu 5. maí 2011 08:53
Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans hf., hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í Björgun ehf . Björgun rekur sanddæluskip og búnað til að stunda verktöku, einkum hafnardýpkanir, og er umfangsmikill efnissali til þeirra sem sinna mannvirkjagerð á Íslandi. Í tilkynningu segir að söluferlið hefjist í dag og er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem standast hæfismat og sýnt geta fram á fjárfestingargetu að upphæð 400 milljónir króna. Unnt er að nálgast frekari upplýsingar um söluferlið og öll nauðsynleg gögn um fyrirtækið á vef Landsbankans. Tímafrestur til að skila inn óskuldbindandi tilboðum rennur út kl. 12:00, föstudaginn 3. júní 2011. Þeim fjárfestum sem skila inn hagstæðustu tilboðunum að mati seljanda verður boðin þátttaka í öðru stigi söluferlisins. Tímafrestur til að skila inn skuldbindandi tilboðum rennur út kl. 12:00, miðvikudaginn 29. júní 2011. Stefnt er að því að söluferlinu ljúki fyrir lok júlí 2011. Björgun var stofnað 11. febrúar árið 1952. Félagið er leiðandi framleiðandi steinefna til hverskonar mannvirkjagerðar á Íslandi. Félagið aflar hráefnis úr námum, bæði á hafsbotni með uppdælingu efnis og á landi með hefðbundnum hætti. Efnið er eftir atvikum flutt til frekari vinnslu á athafnasvæði félagsins við Sævarhöfða í Reykjavík. Björgun hefur um árabil stundað verktöku af ýmsu tagi, svo sem hafnardýpkun, uppdælingu á efni til landfyllinga og uppdælingu á efni til frekari nýtingar á vegum annarra. Á síðari árum hefur Björgun staðið að landþróunarverkefnum, bæði á eigin vegum og í samvinnu við aðra. Verkefnin eiga það sammerkt að felast í uppbyggingu sjávarlóða á höfuðborgarsvæðinu.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Sjá meira