HB Grandamenn ánægðir á sýningunni í Brussel 4. maí 2011 11:07 Þórir Ibsen, sendiherra Íslands hjá ESB og Belgíu, heimsótti sýningarbás HB Granda í morgun. Hér er hann við hlið forstjóra HB Granda með öðrum góðum gestum. Myndin er á vefsíðu HB Granda. ,,
Sýningin hefur farið mjög vel af stað. Það er stöðugur straumur gesta hér á sýningarbásnum okkar og menn eru mjög áhugasamir," segir Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda á sjávarútvegssýningunni í Brussel sem nú stendur yfir. Eggert segir ennfremur að erlendir markaðir séu heilbrigðir og traustir og spurn eftir sjávarafurðum er mjög mikil. „Þá má ekki gleyma því að hér eru haldnir fjörlegir fundir og nú í hádeginu stóð Íslandsstofa fyrir mikilvægum kynningarfundi vegna Icelandic Responsible Fisheries vottunarmerkisins á Holiday Inn hótelinu hér við sýningarhöllina, en þangað var fjölda kaupenda og áhrifaaðila í sjávarútvegi boðið," segir Eggert. Fjallað er um málið á vefsíðu HB Granda. Þar segir að sýningarnar hófust í gærmorgun og munu þær standa yfir í þrjá daga. Þetta eru fjölsóttustu sýningar sinnar tegundar í heiminum í dag en rúmlega 700 fyrirtæki víðs vegar úr heiminum taka þátt í ESE sjávarafurðasýningunni og rúmlega 200 fyrirtæki kynna framleiðsluvörur sínar á véla- og tækjasýningunni SPE sem haldin er samhliða. Íslensk fyrirtæki eru áberandi á sýningunum líkt og undanfarin ár en í ár taka 26 íslensk fyrirtæki þátt. Íslandsstofa hefur haft veg og vanda af því að skipuleggja þátttökuna en nefna má að þetta er í 19. sinn sem íslensku fyrirtækin kynna afurðir sínar og framleiðslu á sameiginlegu sýningarsvæði. HB Grandi hefur tekið þátt í ESE sýningunni síðan 2005 og er þetta því í sjöunda sinn sem afurðir félagsins eru kynntar á þessum vettvangi. Í fyrra var bryddað upp á þeirri nýbreytni að fenginn var matreiðslumeistari, Þórður Þrastarson frá Akranesi, til þess að útbúa smárétti, aðallega úr sjávarfangi, sem gestum og gangandi gafst færi á að smakka. Mæltist þetta mjög vel fyrir og því var ákveðið að bjóða upp á sams konar kynningu nú. Að þessu sinni er það starfsbróðir og vinur Þórðar, Gunnar V. Jónsson, sem stendur vaktina, en hann er kokkur á ísfisktogaranum Sturlaugi H. Böðvarssyni AK, sem HB Grandi gerir út. Gunnar er í leyfi frá sjómennskunni á meðan á sýningunni stendur og meðal þess, sem hann hefur töfrað fram í dag, eru girnilegir smáréttir þar sem makríll, loðna, þorskur, ufsi og fleiri sjávarafurðir eru í öndvegi.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Sjá meira