Gekk Tryggvi erinda Milestone? 13. maí 2011 19:15
Frásögn fyrrverandi seðlabankastjóra og annarra styrkir þá frásögn að Tryggvi Þór Herbertsson, alþingismaður, hafi gengið erinda Milestone þegar hann var efnahagsráðgjafi forsætisráðherra. Björgólfur Thor Björgólfsson segir á vef sínum að Tryggvi Þór Herbertsson, núverandi alþingismaður, hafi notað fund sem hann átti með Björgólfi í umboði Geirs H. Haarde þáverandi forsætisráðherra til að selja honum Askar Capital, en Tryggvi hafði aðeins örfáum misserum áður verið forstjóri þess félags. Fundurinn átti sér stað í ágúst 2008. Tryggvi barst ókvæða við greininni og sagði Björgólf Thor „lygamörð" og „siðleysingja." Í sjöunda bindi rannsóknarskýrslunnar segir um sunnudagskvöldið 29. september 2008, daginn fyrir þjóðnýtingu Glitnis að Karl Wernersson, stjórnarformaður Milestone og fyrrv. yfirmaður Tryggva, hafi sent starfsmanni Seðlabankans tölvupóst með hugmyndum Milestone um aðkomu ríkissjóðs að vandræðum Glitnis og af bréfinu hafi mátt ráða að Karl hafi verið upplýstur um vandræði Glitnis, sem benti til að upplýsingar hefðu lekið út. Þá er einnig haft eftir seðlabankastjóra, í þessu sama bindi og sama kafla skýrslunnar, að Tryggvi Þór hafi verið „gerandi með Milestone-mönnum í fullt af hlutum og átti að koma aftur til baka í þessa starfsemi, og seðlabankastjórinn segir: „Mér fannst þetta allt saman mjög óþægilegt og þegar var búið að segja mér þarna áður af mínum starfsmönnum að hann væri hringjandi út að lýsa við „kontakta" sína í farsíma hvað við værum að ræða þarna inni, þá fannst mér það algjörlega forkastanlegt og undirstrika efasemdir mínar um það að hann gæti komið fram sem fulltrúi forsætisráðherrans gagnvart Seðlabankanum og ætlast til þess að við sýndum honum fulla hreinskilni." Tryggvi Þór sagðist við fréttastofu hafna því að hafa gengið erinda eins né neins þegar hann var ráðgjafi forsætisráðherra og sagði að Geir gæti staðfest orð sín. Geir svaraði ekki skilaboðum fréttastofu.
Mest lesið Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Sjá meira