Gæti bætt lánshæfið 13. maí 2011 07:40 "
Það er fylgni á milli þess þegar Seðlabankinn kaupir aftur erlend skuldabréf ríkissjóðs og þess að álagið lækkar," segir Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur á greiningardeild Íslandsbanka. Skuldatryggingarálag á ríkissjóð hefur lækkað jafnt og þétt frá því að Seðlabankinn keypti evrubréf fyrir 57 milljarða króna í síðustu viku. Það stendur nú í 214 stigum og hefur ekki verið lægra síðan um miðjan júní fyrir tæpum þremur árum. Hæst fór álagið í tæp 1.500 stig í bankahruninu 10. október 2008. Álagið nú merkir að það kostar 2,14 prósent af nafnvirði skuldabréfa til fimm ára að tryggja þau gegn greiðslufalli. Þegar verst lét var álagið um fimmtán prósent. Skuldabréfin sem Seðlabankinn keypti að hluta eru á gjalddaga á þessu ári og því næsta. Þau voru upphaflega jafnvirði 204 milljarða króna að nafnvirði. Bankinn hefur verið að kaupa bréfin jafnt og þétt. Eftir síðustu kaup standa eftir bréf upp á 73 milljarða króna. Í Markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa á dögunum sagði að kaupin ættu jafnframt að hafa jákvæð áhrif hjá matsfyrirtækjum þegar þau endurskoðuðu næst lánshæfismat Íslands. Eitt matsfyrirtæki hefur sett lánshæfismatið í ruslflokk og hin tvö eru með það einu haki þar fyrir ofan hann. - jab
Mest lesið Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Sjá meira